Ætlar að kynna sig á Kaffihorninu í dag
Helga Þorbergsdóttir hjúkrunarfræðingur í Vík og frambjóðandi í komandi prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi verður á ferðinni um sveitarfélagið Hornafjörð í dag 17.okt. Hún ætlar að vera á Kaffihorninu kl. 17:20 og vonast eftir að hitta þar sem flesta íbúa svæðisins. Markmiðið með þeim fundi er að frambjóðandinn fái tækifæri til að kynna sig og heyra um þau mál sem efst eru á baugi í sveitarfélaginu og sjónarmið íbúanna. Helga er fædd árið 1959, hún sleit barnsskónum í Bolungarvík, flutti á táningsaldri í Kópavog en hefur búið og starfað í Vík í Mýrdal frá árinu 1985. Maki; Sigurgeir Már Jensson læknir og eiga þau fjögur börn. Helga er varaþingmaður og hefur setið í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins frá síðasta landsfundi, sat í sveitarstjórn Mýrdalshrepps 1994-2002 og var oddviti sveitarstjórnar síðara kjörtímabilið.
Hún hefur einnig gegnt trúnaðarstörfum á margvíslegum vettvangi lands- og héraðsmála.
Helga hefur auk hjúkrunarfræðináms m.a. stundað nám í heilsuhagfræði, sálgæslu, stjórnun og siðfræði.




Skrifa athugasemd