Lúðvík Bergvinsson opnar kosningamiðstöð í Reykjanesbæ
Mjög góð mæting var eða milli 80 og 100 manns voru viðstaddir opnun kosningamiðstöðvar Lúðvíks Bergvinssonar alþingismanns í Aðalveri, sal gömlu Aðalsstöðvarinnar að Hafnargötu 86 í Reykjanesbæ sl. laugardag. Lúðvík flutti stutt ávarp þar sem hann fór yfir stöðu mála. Þar kom m.a. fram að þetta prófkjörið væri afar mikilvægt því þar ræðst hverjir skipa efstu sæti listans. Það er nauðsynlegt að Samfylkingin nái góðri kosningu í vor ef takast á að fella ríkisstjórnina. Niðurstöður prófkjöranna munu ráða því hvort listar flokksins verði trúverðugir og sigurstranglegir í vor. Lúðvík þakkaði stuðningsmönnum og meðframbjóðendum og öðrum flokksmönnum komuna og lofaði heiðarlegri en snarpri baráttu um 1. sætið á lista Samfylkingar í vor.
Kosningamiðstöðinn verður opinn alla daga frá 16.00 ? 22.00 og lengur um helgar fram yfir prófkjör.
Andrés Sigurvinsson kosningastjóri.



Skrifa athugasemd