Pistlar og pólitík
Júlíus Helgi
Júlíus Helgi
Júlíus Helgi

12.10.2006 Pistlar og pólitík

Júlíus Helgi Einarsson gefur kost á sér í 2.- 4. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar

Júlíus Helgi Einarsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2.- 4. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Júlíus er 49 ára og býr með fjölskyldu sinni í Sandgerði. Hann er í stjórn Samfylkingarinnar þar í bæ og situr nú í byggingarnefnd. Júlíus er múrarameistari að mennt en auk þess lauk hann námi frá Tölvuháskóla Verslunarskóla Íslands árið 1990. Júlíus starfaði fram að þeim tíma sem múrarameistari síðan í 7 ár sem skrifstofustjóri hjá Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis, Fiskifélagi Íslands í eitt og hálft ár en rekur nú eigið fyrirtæki á sviði upplýsingatækni.

Júlíus hefur verið í Neyðarnefnd Rauða krossins á Suðurnesjum sl. 10 ár.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica