Pistlar og pólitík
Kjartan Ólafsson
Kjartan Ólafsson
Kjartan Ólafsson

29.09.2006 Pistlar og pólitík

Kjartan Ólafsson gefur kost á sér í 2. sæti á lista sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi

Kjartan Ólafsson alþingismaður hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti á framboðslista sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi, en um helgina má vænta þess að tekin verði ákvörðun um hvort efnt verður til prófkjörs eða stillt upp á listann með öðrum hætti. Kjartan tók fyrst sæti á Alþingi árið 2000 og hefur setið óslitið á þingi frá árinu 2003. Helstu áherslur Kjartans liggja á sviði menntunar- heilbrigðis- og atvinnumála en Kjartan er meðal annars formaður stóriðjunefndar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga Hann hefur verið formaður Sambands garðyrkjubænda um langt árabil, setið á Búnaðarþingi frá árinu 1995 og látið atvinnumál í kjördæminu til sín taka með margvíslegum hætti um áratugaskeið.

Kjartan lauk prófi frá Garðyrkjuskóla ríkisins og stundaði framhaldsnám við garðyrkjuskólana í Söhus og Beder í Danmörku. Hann starfaði sem ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Suðurlands um tíu ára skeið, stýrði fjármálum sambandsins í rúman áratug og gegndi lengi störfum framkvæmdastjóra Steypustöðvar Suðurlands.

Á meðal stjórnmála-, félagsmála- og trúnaðarstarfa á undanförnum árum má nefna stjórnarsetu í Skógræktarfélagi Íslands, Landgræðslusjóði, Áburðarverksmiðju ríkisins, Framleiðnisjóði landbúnaðarins og réttargeðdeildinni að Sogni. Kjartan var formaður Skógræktarfélags Árnesinga í fimmtán ár, formaður heilbrigðisnefndar Ölfushrepps í tæp tíu ár og formaður umhverfisnefndar sveitarfélagsins Ölfuss í átta ár.
Kjartan hefur verið í forsvari fyrir sunnlensk sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklinga varðandi uppbyggingu heilsársvegar um Kjöl og er varaformaður stjórnar Norðurvegar ehf sem vinnur að hagkvæmniathugun á þessari framkvæmd.

Hann var í stjórn og síðar formaður Félags ungra sjálfstæðismanna í Suðurlandskjördæmi, í stjórn sjálfstæðisfélagsins Óðins á Selfossi og hefur gegnt formennsku í kjördæmisráði Sjálfstæðisflokksins. Hann situr nú í allsherjarnefnd Alþingis, iðnaðarnefnd, menntamálanefnd og umhverfisnefnd auk þess að sitja í Íslandsdeild Norðurlandaráðs, en áður sat Kjartan meðal annars um nokkurra ára skeið í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins.

Sem formaður stóriðjunefndar Samtaka sveitarfélaga á Suðurlandi beitti Kjartan sér m.a. fyrir útgáfu ritsins ?Suðurland tækifæranna? fyrr á þessu ári en þar eru forsendur stóriðju og kröftugrar uppbyggingar atvinnulífs á Suðurlandi tíundaðar, meðal annars í tengslum við umtalsverðar hafnarframkvæmdir í Þorlákshöfn.

Kjartan er staðráðinn í að beita sér áfram af alefli í þágu atvinnulífs í kjördæminu. Hann á fjölbreyttri og fasælli reynslu sem hann vill nýta til frekari verðmætasköpunar og um leið bættra lífskjara í kjördæminu og öðrum dreifðari byggðum landsins.

Kjartan er kvæntur Örnu Kristínu Hjaltadóttur skrifstofumanni. Börn þeirra eru Hjalti Jón, Hugborg og Herdís Ólöf.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica