Pistlar og pólitík
Árni Rúnar Þorvaldsson
Árni Rúnar Þorvaldsson
Árni Rúnar Þorvaldsson

22.09.2006 Pistlar og pólitík

Stefni á 3.–4. sæti í opnu prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi

Á aðalfundi kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi sem haldinn var 17. september í Þorlákshöfn var samþykkt að viðhafa prófkjör við val á framboðslista flokksins fyrir komandi alþingiskosningar. Rétt til þátttöku hafa allir kosningabærir einstaklingar í Suðurkjördæmi sem lögheimili eiga í kjördæminu á kjördag. Það er stórt tækifæri fyrir kjósendur fólgið í því að fá að taka þátt í því að raða niður á lista þeirra flokka sem hyggjast bjóða fram til Alþingis. Samfylkingin í Suðurkjördæmi hefur ákveðið að hafa prófkjörið algjörlega opið með það að markmiði að sem flestir íbúar í Suðurkjördæmi geti haft áhrif á niðurröðun á listann okkar. Þessi ákvörðun er í góðu samræmi við þá lýðræðishefð sem er til staðar innan Samfylkingarinnar. Kjósendur geta nú með beinum hætti haft áhrif á það hvaða fólk kemur til með að vera málsvarar þess í sölum alþingis.

Ég hef lengi haft áhuga á landsmálunum og hef einnig mikinn áhuga á því að taka þátt í því brýna verkefni að koma núverandi ríkisstjórn frá völdum. Það er áríðandi verkefni að við jafnaðarmenn komumst til valda þannig að hugsjónir og hugmyndir jafnaðarstefnunnar komist til framkvæmda. Þjóðfélagið þarfnast ríkisstjórnar sem stefnir að félagslegum og efnahagslegum jöfnuði íbúanna. Þessar áherslur verða aldrei hafðar að leiðarljósi nema í ríkisstjórn sem við jafnaðarmenn leiðum. Einnig tel ég það mjög mikilvægt að sterk rödd heyrist með áberandi hætti úr þessum hluta þessa stóra kjördæmis. Af þessum ástæðum hef ég ákveðið að gefa kost á mér í 3. - 4. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi sem fram fer laugardaginn 4. nóvember næstkomandi.

Undanfarin ár hef ég starfað sem kennari og hef komið talsvert að félagsmálum í mínum heimabæ. Í síðustu sveitarstjórnarkosningum skipaði ég fyrsta sæti á lista Samfylkingarinnar á Hornafirði sem vann glæsilegan sigur í kosningunum. Að loknum kosningum mynduðum við meirihluta með Framsóknarflokknum og í dag er ég forseti bæjarstjórnar. Við í Samfylkingunni á Hornafirði erum afar stolt af árangri okkar í kosningunum og teljum mikilvægt að fylgja þessum góða árangri eftir og framboð mitt í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi er liður í því.

Árni Rúnar Þorvaldsson
Forseti bæjarstjórnar Hornafjarðar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica