Pistlar og pólitík
Frá Leikskólanum Lönguhólum í morgun
Frá Leikskólanum Lönguhólum í morgun
Frá Leikskólanum Lönguhólum (úr myndasafni)

07.06.2006 Pistlar og pólitík

Breytingar á skipulagi í leikskólum Hornafjarðar.

Á 101. fundi bæjarstjórnar var samþykkt að gera leikskóla Hornafjarðar að tveimur sjálfstæðum skólastofnunum fyrir eins til sex ára börn. Á skólamálaþingi sem haldið var 19. febrúar 2005 kom fram sú tillaga að skipulagsbreytingum að leikskólar Hornafjarðar yrðu tveir sjálfstæðir leikskólar með börn á aldrinum 1-6 ára. Þann 2. maí sama ár var haldinn kynningarfundur fyrir foreldra beggja leikskólanna um þessar tillögur. Á aðalfundi foreldra-félagsins Krakkahóla haldinn 18. október sama ár var umræða um þessar tillögur. Á öllum þessum fundum höfðu foreldrar jafna möguleika á að kynna sér málin og koma sínum skoðunum á framfæri.

Þær ástæður sem gefnar eru fyrir þessum breytingum eru eftirfarandi:

  • Börn hafa möguleika á því að vera alla sína leikskólagöngu í einum og sama leikskólanum. Með því skapast samfella í námi þeirra og starfi. Börnin þurfa ekki að takast á við þær breytingar sem fylgja því að skipta um skóla, starfsfólk, áherslur í skólastarfi og reglur. Með þessu fækkar þeim skiptingum sem börn ganga í gegnum í skólasamfélagi Hornafjarðar.
  • Nú þegar þessar breytingar ganga í garð hafa foreldrar val og ákveða sig sjálfir hvaða leikskóla þeir vilja að barnið þeirra sé í og geta haft til hliðsjónar stefnur og námskrár leikskólanna. Það eru ekki einhverjir aðrir sem ákveða fyrir foreldra hvar börnin eiga að vera.
  • Foreldrar með fleiri en eitt barn á leikskólaaldri geta sjálfir valið um það hvort börnin þeirra séu í sama leikskólanum eða í sitt hvorum
  • Það er jákvætt að börn séu í skóla með nokkrum árgöngum og læri að umgangast eldri og yngri börn
  • Með þessum breytingum eru góðar forsendur fyrir auknu samstarfi milli skólanna með árgangana
  • Börn með þroskaraskanir fá betri þjónustu og fá greiningu fyrr með þessum breytingum. Börn og foreldrar lenda þá ekki í því að bíða með greiningu og vinnu vegna þess að flutningur milli leikskóla er framundan. Aðstoð vegna vinnu með þessum börnum verður skilvirkari bæði til barnanna og foreldra.

Þær ástæður sem upp eru taldar hér eru mjög mikilvægar þegar haft er í huga hvað er best fyrir barnið. Í ritgerð Jóhönnu Einarsdóttur í tímariti Kennaraháskóla Íslands, Uppeldi og menntun, 13. árgangur, 2. heftir 2004, útgefnu af Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands kemur fram að ?Samfella í námi barna er talin mikilvæg fyrir velferð þeirra og framtíðarskólagöngu?. ?Lynn Kagan hefur bent á að ákveðið samhengi þurfi að vera í hugmyndafræði, kennslufræði og skipulagi leik-og grunnskóla?. ?Í nýlegri skýrslu (OECD, 2001; Bennet, 2003) um kennslu ungra barna er lögð áhersla á samfellu í námi barna 0-8 ára og er því haldið fram að gjá milli kennslu og umönnunar standi menntun barna á þessum aldri fyrir þrifum?. (Bls. 59).

Við lýsum yfir ánægju okkar með að þessi ákvörðun var tekin og hlökkum til að takast á við þá vinnu sem framundan er og vonumst til að eiga gott samstarf og samvinnu við foreldra. Að lokum bendum við á heimasíður skólanna, www.leikskolinn.is/krakkakot og www.leikskolinn.is/longuholar .

Stjórnendur leikskólanna Krakkakots og Lönguhóla.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica