Pistlar og pólitík
Lönguhólar
Lönguhólar

06.06.2006 Pistlar og pólitík

Leikskólar Hornafjarðar- Hvers vegna, hvernig og hvað svo ?

Nú er svo komið að breyta á því fyrirkomulagi sem er á leikskólum Hornafjarðar. Nú verða tveir leikskólar með skólavist fyrir 1-5 ára í stað þess fyrirkomulags sem nú er. Hvers vegna? Þær ástæður sem gefnar hafa verið, eru m.a. að skapa á meiri samfellu í skólagöngu barna og að auka val íbúanna. Ástæðurnar eru vonandi fleiri. Hvernig þetta á að virka er samt spurning? Verða áherslurnar í skólastarfinu misjafnar á milli skólanna? Vistunartíminn, verður hann sá sami? Hvernig á að huga að því að ekki verði mikill ójöfnuður í árgöngum á milli skóla?

Nýja fyrirkomulagið á að taka gildi að mér skilst núna á næstu vikum. Hvað gerist svo? Það er mikill munur á húsnæði, leiktækjum og þeirri aðstöðu sem er á Lönguhólum og svo á Krakkakoti. Er búið að tryggja fjármagn í þær framkvæmdir sem þörf er á að gera ef þær eru einhverjar? Og ef svo, verður strax farið í þær framkvæmdir?
Ég met þessar breytingar sem miklar og umdeildar breytingar sem mjög skiptar skoðanir eru um. Það var ekki einhugur um þessar breytingar í gömlu bæjarstjórninni fyrir kosningar en menn virðast hafa náð henni inn á síðustu metrunum eftir kosningar áður en að nýr meirihluti tók við. Enda menn kannski ekki í sömu buxunum á hverjum degi?
Spurningar eru margar sem brenna á foreldrum og það hefði verið gott að heyra svör við þeim áður en að endanleg ákvörðun um breytingar var tekin. Umræðan væri þá kannski jákvæðari en hún er þó að allar breytingar eigi það til að vera umdeildar í fyrstu.
Við foreldrar eigum að gera upp hug okkar um það hvorn leikskólann við viljum fyrir börnin fyrir 15. júní næstkomandi. Það gerum við vonandi með hagsmuni barnanna okkar í huga en ekki eingöngu með því að velja það sem okkur er helst að skapi. Til þess þurfum við svör við spurningum okkar sem í raun beinast bæði að stjórnendum leikskólanna og sveitarfélagsins.

Ég vil hvetja alla foreldra leikskólabarna til þess að mæta á kynningarfundinn um þessar breytingar sem haldinn er á Krakkakoti kl 20 í kvöld. Það þýðir ekkert að sitja heima og velta vöngum yfir spurningunum við eldhúsborðið, það á að spyrja þeirra þar sem rétta fólkið getur svarað þeim.

Sigrún Kapitola Guðrúnardóttir

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica