Pistlar og pólitík
Kaupásfundur á Hótel Höfn
Kaupásfundur á Hótel Höfn
Sigurður Arnar Sigurðsson forstjóri, Ari Þór Friðfinnsson rekstrarstjóri Krónunnar og Guðmundur Hafsteinsson rekstrarstjóri 11-11

22.05.2006 Pistlar og pólitík

Ágætu íbúar Hafnar.

Kaupás | Matvöruverlsun á Höfn

Eins og fram kom á fundi sem ég hélt með ykkur þann 7. mars sl. er ástæða þess að við lokuðum verslun Krónunnar sú, að okkur var sagt upp húsnæðinu að Litlubrú 1 þar sem 11-11 er til húsa. Eins og ég útskýrði á fundinum þá er forsenda þess að reka lágvöruverslun á Höfn með jafn lágri framlegð eins og er á markaðnum í dag þar sem margar vörur eru seldar undir kostnaðarverði að geta einnig haft möguleika á því að selja vörur með hærri framlegð í gegnum aðra verslun. Þegar sú forsenda er ekki fyrir hendi þá eru rekstrarforsendur ekki lengur fyrir hendi. Á þessum fundi lofaði ég því einnig að við myndum vegna þessara breytinga lækka verðið í 11-11 verslun okkar verulega. Nú er ég að lesa þá umræðu á vefnum ykkar að við það loforð hafi ekki verið staðið (grein frá 2. maí) og einnig að KHB hafi metnað til að gera betur en það sem fyrir var (grein frá 11. mai).

Hvað varðar fyrra atriðið þá vísa ég því algerlega á bug að við höfum ekki staðið við gefin loforð, en ég hvet íbúa til að ganga eftir því að KHB sýni metnaðinn og verði með lægri verð en Krónan, því það er eina leiðin til að gera betur en við gerðum. Það verður gaman að fylgjast með því.

En til að útskýra hvað við höfum gert þá er staðan þessi.

Við lækkuðum strax 200 algengustu vöruliði í þurrvöru/mjólkurvöru og miðað við verðkönnun sem ég lét gera s.l. fimmtudag er niðurstaðan þessi.
Karfa með þessum 200 vörum kostar í Krónunni um 30 þúsund, í 11-11 Höfn kostar hún nú um 35 þúsund, en hefði kostað um 45 þúsund í 11-11 Höfn fyrir breytingu.
Einnig lækkuðum við verð á ávöxtum og grænmeti verulega, td kosta Del Monte bananar 132 kr. í Krónunni, 139 kr. í 11-11 Höfn, en hefði kostað 229 í 11-11 Höfn fyrir breytingu.
Að auki erum við með fastan 10% afslátt á mörgum kjötvörum en bjóðum þar að auki 30-40% afslátt af ýmsum tilboðum, t.d. lambalærum og kjúklingabringum.

Við tökum allri gagnrýni, en hún verður að vera byggð á rökum og gott er að hafa það í huga að starfsfólkið sem þjónar íbúum á hverjum degi tekur umræðu sem þessa mjög nærri sér. Þess vegna er best fyrir alla að fara varlega.

Ég vil að lokum koma því á framfæri að allt okkar starfsfólk á Höfn með Helgu í fararbroddi hefur staðið sig frábærlega vel í því að tryggja íbúum Hafnar fyrsta flokks vörur og þjónustu.

Með kveðju frá Kaupási hf,
Sigurður Arnar Sigurðsson
forstjóri

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica