Prófkjör Sjálfstæðismanna
Björk Pálsdóttir, þátttakandi í prófkjöri sjálfstæðismanna
Nú fer spennan að magnast,það styttist óðum í prófkjörið. Ég vil láta þess getið að við félagarnir sem tökum þátt í þessu prófkjöri eru mestu mátar að ég best veit. Ég tel að við séum heppin að geta tekið sjálfstæðar ákvarðanir. Það er nú einu sinni þannig í pott búið að í litlu samfélagi þar skipta einstaklingar miklu meira máli heldur en pólitískir flokkar. Sá sem vinnur í félagsmálum þarf að vera þeim hæfileikum gæddur að geta staðið og fallið með þeim skoðunum sem hann/hún hefur, og það er ekki sjálfgefið að allir séu alltaf sammála. Ég hlakka til að sjá niðurstöðurnar úr prófkjörinu og er tilbúin að vinna með félögum mínum í Sjálfstæðisflokknum fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð fái ég til þess brautargengi.
Það styrkir þá sem skipa efstu sætin að vita af þeim stuðningi sem býr að baki skipuðu sæti á lista til sveitarstjórnarkosninga. Ég óska eftir þínum stuðningi í 3-5 sætið. Með kveðju Björk Pálsdóttir




Skrifa athugasemd