Valið á að vera skýrt
Grein: Halldóra Bergljót Jónsdóttir þátttakandi í prófkjöri sjálfstæðismanna
Ný styttist í prófkjör okkar sjálfstæðismanna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Eftir 12 ára setu í bæjarstjórn býð ég mig fram til starfa í þágu sveitarfélagsins næstu fjögur árin. Ég er fædd í Reykjavík 1952 og uppalin þar, fluttist með foreldrum og systkinum mínum árið 1971 hingað til Hornafjarðar og hef átt hér heima síðan. Ég lauk Verslunarprófi vorið 1971 og stúdentsprófi árið 1974 frá Verslunarskóla Íslands. Ég er gift Ágústi H. Þorbjörnssyni og eigum við fjögur börn, tvær tengdadætur og tvær yndislegar sonardætur. Hér eiga börnin mín og tengdabörn sínar rætur og hér vilja þau búa.
Ég tel að þeir sem gefa kost á sér til starfa fyrir samfélagið þurfi að hafa skýra framtíðarsýn. Við þurfum öflugt og fjölbreytt atvinnulíf og að þjónusta sé góð. Sveitarfélagið getur stuðlað að betri þjónustu með úthýsingu verkefna til starfandi þjónustufyrirtæja. Góð aðstaða þarf að vera til menntunar á öllum skólastigum. Skólar og félagsþjónusta vinni að því að búa börnin okkar sem best undir lífið. Við eigum að standa við bakið á þeim sem minna mega sín, en ávallt að leitast við að hjálpa þeim sem mest til sjálfshjálpar. Mikilvægt er að áfram blómgist gott menningarlíf, sem er einstaklega fjölbreytt, því hér býr mikið af hæfileikaríku fólki. Ég er stolt af því að búa hér á þessum fallega stað og hef stundum sagt við kunningja mína að þeir séu ekki búnir að sjá Ísland fyrr en þeir hafi heimsótt Hornafjörð og séð okkar fallegu fjallasýn.
Mín skoðun er að valið eigi að vera skýrt. Við eigum að velja á listann bæði þá sem hafa reynslu, en einnig huga að nýliðun og rýma fyrir þeirri kynslóð sem tekur við stjórnartaumum í sveitarfélaginu.
Ég sækist eftir að leiða framboð sjálfstæðismanna í komandi kosningum og óska eftir stuðningi ykkar og styrk til að takast af fullum krafti á við þau verkefni sem framundan eru, til að samfélagið okkar verði góður samastaður fyrir alla okkar þegna í leik og starfi.
Halldóra Bergljót Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar.




Skrifa athugasemd