Pistlar og pólitík
Björn Emil Traustason
Björn Emil Traustason
Björn Emil Traustason

07.04.2006 Pistlar og pólitík

Hvar vil ég fæðast?

Björn Emil Traustason, þátttakandi í prófkjöri sjálfstæðismanna

Unga fólkið
Ég held að flestir séu sammála um að fátt er skemmtilegra í lífinu en horfa á börnin sín vaxa úr grasi, finna persónuleikann springa út, fylgjast með sigrum þeirra og ósigrum, læra að elska þau takmarkalaust, kynnast vinum þeirra, gefa að borða, hugga, rífast, tuða, snýta, kenna, skeina, gráta og hlæja. Mörg okkar kvíða því þegar börnin okkar komast á þennan aldur. Verður þetta ekki erfitt? Týnast þau sér ekki í tölvunni eða yfir sjónvarpinu? Munu þau einangrast, verða fyrir einelti, lenda í vandræðum með ástina, áfengi, skólann? Og gefast þau svo upp á okkur, foreldrum sínum? Unglingsárin eru sannarlega umbrotatími en eru þau svo hræðileg þegar öllu er á botninn hvolft?

Unglingar eru ekkert endilega auðvelt fólk, þau gera kröfur og eru komin með sterkar skoðanir sem þau liggja ekki á en mín reynsla er að þau séu greind,opin, dugleg og stöðugt að koma manni á óvart með krafti sínum og áræði. Við getum nefnilega verið stolt af unglingunum okkar. Þau eiga það skilið að við höldum áfram að búa þeim samfélag sem hvetur þau til dáða.

Ég tók saman hvað margir unglingar hafa verið við mjölútskipun hjá okkur í Bræðslunni frá því að ég flutti hingað. Niðurstaðan var sú að 689 ungmenni hafa tekið þátt í þessari vinnu. Og ekki nóg með það, þetta unga fólk, stelpur og strákar, stóðu sig 100% í vinnu.
Þau unnu alltaf saman sem eitt lið ( tím ). Vegna þess, að í svona vinnu eru allir, jafn metnir að verðleikum. Allir fá sömu laun fyrir sína vinnu. Við megum aldrei gleyma því, að fólk sem vinnur með 2 höndum er jafn misjafnt, eins og við erum mörg.

Ekki mismuna unga fólkinu, ekki draga ungafólkið í dilka. Allir þurfa sinn séns. Tölum saman, það er lausnin. Ekki mismuna íbúum þessa sveitarfélags. Búum betur að ungu fólki, drögum úr, eða fellum niður leikskólagjöld, matarpening, og íþróttargjöld.
Auka þarf framboð á lóðum.


Hvar vil ég eldast?

Eldri borgarar,
Þeir sem eldri eru eiga það skilið frá okkur sem yngri erum að tryggt sé raunverulegt val um eigin búsetu og fjölbreytta valkosti í þjónustu, aðstöðu og umhverfi.
Hornfirðingar þurfa að hugsa til framtíðar og ímynda sér framtíð sína sem eldri borgarar. Þeir sem eldri eru eiga skilið að þessi framtíðarsýn sé sett í framkvæmd strax í dag.
Hornafjörður hefur sem sveitarfélag lagaskyldu um að eiga frumkvæði að uppbyggingu stofnana eða því hvaða aðili skuli vera ábyrgur fyrir því að þessi þjónusta sé fyrir hendi.
Stefnumótun með hagsmunaaðilum er tímabær og nauðsynleg til þess að hefja áætlanagerð um búsetukosti fyrir eldri borgara. Við stefnumótun þarf að taka mið af ólíkum fjárhagslegum, félagslegum og heilsufarslegum þörfum og aðstæðum aldraðra.
Öll úrræði á hverju þessara sviða skulu saman miðast að því að aldraðir geti búið sem lengst á eigin heimili. Tryggjum öldruðum frelsi til að velja.
Það eru ekki bara unglingar sem hafa tekið þátt í mjölútskipun, hjá okkur í Bræðslunni, sá elsti var 71+ árs.

Til gamans.
Enda sagði einn af þeim við mig. Við ákveðnar aðstæður - 10°C. Heyrðu 2 Björn Emil Traustason verksmiðjustjóri, hefur þú lesið bókina, Þrælahald undir Vatnajökli. O,P,S,



Virðing.
Berum virðingu fyrir öllum.
Þegar Samúræi segist ætla að koma einhverju til leiðar, þá stendur það að eilífu. Orð skulu standa. Hann þarf ekki að leggja við drengskap sinn.Hann þarf ekki að "lofa". Að tala og gera er sama aðgerð.

Samúræi er ekki einungis virtur fyrir styrk sinn í bardaga, heldur einnig fyrir framkomu sína við aðra menn. Sannur styrkur Samúræja kemur í ljós við erfiðar aðstæður.

Samúræi hefur enga ástæðu til að vera grimmur.
Hann þarf ekki að sanna styrk sinn fyrir neinum. Hann er ávallt kurteis, einnig við óvini sína.

Við erum ekkert annað en villidýr ef við sýnum ekki hvort öðru virðingu.

Samúræi mismunar ekki þegnum sínum.

Samúræi sendir ekki vandamálin í burtu.

"Samúræi" merkir "þjóna"

2 Björn Emil Traustason verksmiðjustjóri.

Í annað sætið

http://www.bet.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica