Pistlar og pólitík
Albert Eymundsson
Albert Eymundsson
Albert Eymundsson bæjarstjóri

06.04.2006 Pistlar og pólitík

Hvenær er maður pólitískur og hvenær ópólitískur?

Á vefnum "horn.is" er kominn upp spjallsíða þar sem hægt er að reifa ýmis mál. Birgir Árnason ríður á vaðið og leggur nokkrar spurningar fyrir frambjóðendur. Þessi skrif hans gefa mér tilefni til svara einni spurningunni þar sem þátttaka mín í prófkjöri sjálfstæðismanna er gerð að umtalsefni og lýst yfir undrun á þeirri ákvörðun minni. Hinar spurningarnar verða að bíða betri tíma enda stórt spurt. Birgir gefur sér ýmsar neikvæðar forsendur fyrir ráðningu bæjarstjóra sem jafnframt situr í bæjarstjórn og hann notar jafnvel orð eins og "sólókarl".

Kosning til setu í bæjarstjórn
Til að fyrirbyggja allan misskilning er ég að gefa kost á mér í prófkjörinu til setu í bæjarstjórn. Ég hef áhuga á og metnað til að láta gott af mér leiða á þeim vettvangi áfram. Það er síðan ákvörðun kjörinna fulltrúa hvern þeir ráða í starf bæjarstjóra. Ef ég verð kjörinn í bæjarstjórn og til mín leitað af samstarfsfólki um að gegna starfi bæjarstjóra áfram er ég tilbúinn í þær viðræður. Aftur á móti er ég vel meðvitaður um að ekkert er sjálfgefið í þeim efnum. Ef til kemur mun ég axla ábyrgð sem óbreyttur bæjarfulltrúi og tel mig hafa burði til að sinna því verkefni vel.

Forgangsröðun í sveitarstjórnarmálum
Stjórnmálaviðhorf mín og afskipti af flokkspólitík þekkir fólk vel. Ég var til margra ára forystumaður sjálfstæðismanna í bæjarstjórn og hef alla tíð verið vel virkur í starfsemi flokksins. Aftur á móti þvælist pólitík ekki fyrir mér þegar ég er að starfa að bæjarmálum eða á öðrum vettvangi. Þar hvílir sú skylda á öllum að gæta hagsmuna sveitarfélagsins og heildarinnar. Í því sambandi verða einnig persónulegir hagsmunir að víkja eins og annað. Á þann veg hef ég lagt mig fram um að starfa og ég veit að fólk hefur ekki þurft að forðast mig af pólitískum ótta eins og gefið er í skyn og mun ekki gera hvernig sem mál æxlast.

Reynslan af pólitískt kjörnum bæjarstjórum
Ef við gerum ráð fyrir að aðstæður séu svipað hér og annars staðar má líta til reynslu annarra sveitarfélaga af pólitískt kjörnum bæjarstjórum. Ég tók lauslega saman hvernig þessum málum er háttað í 35 sveitarfélögum sem mynda svokallaðan bæjarstjórahóp og þá kemur í ljós að í meirihluta þeirra er ?pólitískur? bæjarstjóri. Ætli sú niðurstaða sé vegna slæmrar reynslu með þá tilhögun? Ég leyfi mér að fullyrða að svo sé ekki og eins og oftast þá skipta einstaklingarnir sjálfir mestu máli, viðhorf þeirra, samskipti við fólk og verklag.

Birgir spyr m.a. hvort ekki sé rétt að ráða í starfið rekstrar- og markaðsmann með ferskar og nýjar hugmyndir og borga honum hærri laun "...en gerum kröfu til þess að hann skili þeim peningum margfalt til baka út í samfélagið."

Af hverju skyldi ekki vera svona kraftaverkafólk út um allt land í dag eða í nágrannalöndum okkar þar sem glímt er við svipaða þróun og byggðaröskun. Ef lausnirnar eru þetta einfaldar þurfum við ekki að eyða tíma í umræðu um sveitarstjórnar- og byggðamál.

Ekki er allt sem sýnist
Það rifjaðist reyndar upp fyrir mér í þessum hugleiðingum að athyglisverður bæjarstjóri kom fram á sjónarsviðið í dönsku sveitarfélagi fyrir nokkrum árum. Hann varð frægur fyrir ferskar hugmyndir og að markaðssetja sveitarfélagið vel. Íslenskir sveitarstjórnarmenn fóru meira að segja ásamt kollegum víðar að í pílagrímaferðir til að læra af þessum fyrirmyndarbæjarstjóra. Bæjarstjórinn endaði í fangelsi og sveitarfélagið varð gjaldþrota. Það er ekki ætlun mín að gera lítið úr sérþekkingu fólks sem er mikils virði en hvers konar sérfræðikunnáttu er hægt að kaupa þegar það á við eins og nú er gert.

Bæjarstjóri allra
Fyrir bæjarstjóra skiptir mestu að hafa fjölþætta reynsla og góða þekkingu á flestum sviðum samfélagsins. Mikill meirihluti erinda og mála sem bæjarstjóri kemur að snerta íbúana meira og minna beint, þarfir þeirra, væntingar og réttindi. Bæjarstjóri sem virðir ekki mismunandi viðhorf og getur ekki sett sig í spor ólíkra einstaklinga sem búa við misjöfn kjör en hafa allir sínar tilfinningar, sjálfsvirðingu og stolt getur aldrei orðið bæjarstjóri allra. Þá gildir einu hvar í stjórnmálasamtök hann skipar sér eða hvort hann telst óháður.

Ég átta mig ekki á hvernig Birgir getur komist að þeirri niðurstöðu að viðhorf mín og starfshættir munu breytast til hins verra eftir kosningar verði ég kjörinn í bæjarstjórn og ráðinn bæjarstjóri. Ég er nú bara eins og ég er og á ekki von á hamskiptum við slíkar aðstæður.

Að lokum minni ég á að ég þröngvaði mér ekki í bæjarstjórastólinn, hvorki árið 2000 þegar öll framboðin, meiri- og minnihluti stóðu að ráðningu minni, né árið 2002 þegar sjálfstæðismenn töldu sér það til framdráttar fyrir kosningarnar að ég væri bæjarstjóraefni þeirra. Ég hef enga löngun til að starfa í óþökk íbúana og af þeirri ástæðu finnst mér mikilvægt að fá álit þeirra á störfum mínum og viðhorfum og mun hlíta þeim dómi.

Albert Eymundsson,
þátttakandi í prófkjöri sjálfstæðismanna

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica