Pistlar og pólitík
Gestur Halldórsson
Gestur Halldórsson
Gestur Halldórsson

06.04.2006 Pistlar og pólitík

Vil leggja mitt að mörkum

Laugardaginn 8. apríl er prófkjör hjá sjálfstæðisflokknum. Ég gef kost á mér í 4 sæti listans og vil leggja mitt að mörkum til þess að reyna að bæta okkar samfélag og óska ég eftir stuðningi ykkar til þess. Ég er fæddur á Akranesi á því herrans ári 1960, ég kom fyrst til Hornafjarðar 1972 þegar faðir minn flytur að Nýpugörðum á Mýrum. Ég er þar hjá honum á sumrin til 1976 en þá flutti ég til Hafnar og hef búið hér síðan. Ég starfaði aðallega til sjós fram til ársinns 1988 en þá byrjaði ég að vinna á Smur- og dekkjaverkstæði Vélsmiðju Hornafjarðar og hef ég starfað þar síðan. Árið 1990 kvæntist ég Jónu Margréti Jóhannesdóttir og eigum við 4 börn og 3 barnabörn.

Ég hef reynt að láta gott af mér leiða í félagsmálum og hef m.a. verið formaður Knattspyrnudeildar Sindra og Bridgefélags Hornafjarðar. Í Sveitarfélaginu Hornafirði er mjög gott vera og við sem hér búum vitum að þetta sveitarfélag er ein fegursta náttúruperla landsins með Vatnajökul í allri sinni dýrð. Við þurfum að nýta hvert tækifæri og vera vakandi fyrir þeim möguleikum sem hér kunna að bjóðast til að efla atvinnu og styrkja búsetu í Sveitarfélaginu, ég vil taka þátt í þeirri vinnu og því bíð ég mig fram.

Gestur Halldórsson

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica