Ég stefni á 3. sætið
Valdemar Einarsson, þátttakandi í prófkjöri sjálfstæðismanna
Þann 8. apríl nk. efnir Sjálfstæðisflokkurinn til prófkjörs fyrir komandi sveitastjórnarkosningar. Undirritaður hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3. sætið. Ég er fæddur í Keflavík og ólst þar upp, en byrjaði snemma að venja komur mínar til Hornafjarðar, fyrst 12 ára gamall en þá aðeins í mánuð. Sem gutti vann ég hér á sumrin með gaggó en sumarið 1979 réð ég mig á sjóinn og hef verið þar síðan. Ég er giftur Sif Axelsdóttur og eigum við þrjú börn. Með sjómennskunni hef ég tekið þátt í félagslífi staðarins og verið bæði formaður Bridgefélags Hornafjarðar og Knattspyrnudeildar Sindra sem og verið í framkvæmdanefnd fyrir margar Humarhátíðir. Þá hef ég setið í æskulýðs og tómstundarráði Hornafjarðar síðastliðin 6 ár. Eftir 26 ár á sjónum tel ég að sé komin tími til að reyna eitthvað nýtt, en ég byrja nú á vormánuðum að starfa í landi, sem ég tel algjöra forsendu þess að vinna að bæjarmálum.
Með því að takast á hendur pólitískar skyldur fyrir samfélagið nýtist félagsleg þörf mín vonandi Hornafirði til heilla, því mér þykir afskaplega vænt um sveitarfélagið mitt.
Það er alveg ljóst að þó nýir menn komi inn í bæjarstjórn þá er ekki þar með sagt að þeir finni upp hjólið! Þó er alltaf svo að nýjar áherslur koma með nýjum mönnum.
Við verðum að reyna með ráðum og dáð að efla atvinnulífið. Ef hægt væri að auka fjölbreytnina t.d. með einhverjum smáiðnaði, eru meiri líkur að mannlífið verði fjölskrúðugra, sem er grunn forsenda þess að unga fólkið vilji búa hér. Ekki er síður mikilvægt til að halda lífsgæðum í góðum gír að samkeppni í matvöruverslun sé eðlileg sem kæmi fram í fjölbreyttara vöruvali og verði eins og best gerist.
Vatnajökulsþjóðgarður er eitthvað sem við verðum að standa vörð um og vanda verulega til verka, því þar gætu flóðgáttir opnast bæði í sambandi við stóraukna ferðamennsku og ekki síður hvað varðar ýmis rannsóknarstörf í náttúruvísindum.
Ferðaþjónusta er alltaf að skipa stærri sess í okkar samfélagi, þó ennþá vanti verulega uppá afþreyingu, sérstaklega í þéttbýlinu. Ný sundlaug kæmi mjög sterk inn í þá flóru, en fleira mætti koma til svo markaðssetja mætti Hornafjörð og nágrenni sem verðugan valkost í sumarfríinu.
Íþróttastarf innan Sindra er í sögulegu hámarki og boðið er uppá sex greinar, sem allar eru vel stundaðar. Þá er gott unglingastarf hjá hestamannafélaginu Hornfirðingi og eins er líflegt yfir Golfklúbbi Hornafjarðar. Best er að hafa sem allra mest úrval af íþróttum og tómstundum, svo sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi. Börn og unglingarnir eru mjög kröfuharðir iðkendur, sem við verðum að sinna af natni og umhyggju. Þeir sem stunda jaðaríþróttir svo sem veggja, kassaklifur, hjólabretti o.fl. eru vaxandi hópur sem þurfa aðstöðu sem gerir þeim mögulegt að verða meðal þeirra bestu. Það er alveg ljóst að þegar litið er til áhættuhópa í sambandi við fíkniefnaneyslu, þá er gott íþróttastarf og öflugt félagslíf langbesta forvörnin..
Valdemar Einarsson langflottastur í 3. sæti!




Skrifa athugasemd