Pistlar og pólitík
Guðmundur Magnússon
Guðmundur Magnússon
Guðmundur Magnússon

06.04.2006 Pistlar og pólitík

Styð Björn Inga í 2. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna

Ég hef starfað með Birni Inga að björgunarmálum undanfarinn ár. Á því tíu ára tímabili sem hann var í stjórn Björgunarfélags Hornafjarðar var ráðist í stórvirki á sviði endurnýjunar á tækjabúnaði, bílaflotinn endurnýjaður, 2 vélsleðar keyptir fyrir utan að halda við og uppfæra annan búnað til björgunarstarfsins. Þegar farið er í fjárfestingar sem þessar verður að gæta þess að jafnvægi sé í fjármálum. Þar lagði Björn Ingi sitt að mörkum og tilfinning hans fyrir rekstri reyndist félaginu vel. Þessar fjárfestingar kostuðu á annan tug milljóna sem hafa þegar verið greiddar, auk þess að fjárhagur félagsins er góður. Björn Ingi situr í stjórn Björgunarbátasjóðs Ingibjargar, auk þess að sitja í Fjárveitingarnefnd Landsbjargar sem hefur með skiptingu fjármagns milli björgunarsveita.

Björn Ingi er fylginn sér og oft hef ég lent í rökræðum við hann. Þá er hann ekki ósanngjarn þó hann sé fastur fyrir. Þó skoðanaskipti hafi oft verið í formi rökræðna um daglegan rekstur björgunarfélagsins, þá blandaðist engum hugur um hverjum bar að trúa og treysta þegar í alvöruna var komið. Þar var Björn Ingi ótvíræður leiðtogi sem flestir tóku mark á. Nú þegar okkur bjóðast kraftar hans í þágu samfélagsins þá eigu við ekki að fúlsa við. Ég tel Björn Inga eiga fullt erindi í Bæjarstjórn Hornafjarðar og styð hann í 2. sæti í prófkjöri sjálfstæðisflokksins.

Guðmundur Magnússon.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica