Tilbúinn til starfa fyrir þig
Björn Emil Traustason, þátttakandi í prófkjöri sjálfstæðismanna
Laugardaginn 8. apríl verður prófkjör hjá sjálfstæðisflokknum. Ég gef kost á mér til áframhaldandi starfa í þágu íbúa sveitarfélagsins. Ég hef starfað með Sjálfstæðisflokknum lengi og verið varabæjarfulltrúi ásamt því að sitja í nefndum fyrir flokkinn. Í síðustu sveitarstjórnarkosningum náði ég 2. sæti á lista sjálfstæðisflokksins og náði kjöri sem bæjarfulltrúi. Á kjörtímabilinu sem nú er að líða hef ég setið í bæjarstjórn, og varamaður í bæjarráði. Þessi ár hafa kennt mér mikið og mun ég því koma vel undirbúinn, til áframhaldandi starfa fái ég til þess ykkar umboð. Ég sækist eftir 2. sæti.
Ég er fæddur 11. mars árið 1956 á Akureyri. Ólst upp í Neskaupstað og norður á Langanesi. Er Rafvirki að mennt. Byrjaði vinnu hjá Síldarvinnslunni árið 1976 sem rafvirki í loðnubræðslunni. Var gerður að vaktformanni árið 1978, ásamt því að sjá um rafmagnið. Vann 2. ár í álveri, hjá Årdal og Sundalverk í Noregi, þar varð ég flokksstjóri eftir 6 mánuði. Síðan fluttum við fjölskyldan á Hornafjörð árið 1993. Er verksmiðjustjóri í Bræðslunni.
Björn Emil Traustason.
Bæjarfulltrúi




Skrifa athugasemd