Vil starfa áfram fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð
Grein: Einar Karlsson, þátttakandi í prófkjöri sjálfstæðismanna
Laugardaginn 8. apríl verður prófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum. Ég gef kost á mér til áframhaldandi starfa í þágu sveitarfélagsins. Ég hef starfað með Sjálfstæðisflokknum lengi og verið varabæjarfulltrúi ásamt því að sitja í nefndum fyrir flokkinn. Í síðustu sveitarstjórnarkosningum tók ég 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins og náði kjöri sem bæjarfulltrúi. Á kjörtímabilinu sem nú er að líða hef ég svo setið í bæjarstjórn og bæjarráði og átt sæti í stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Þessi ár hafa kennt mér mikið og mun ég því koma vel undirbúinn til áframhaldandi starfa fái ég til þess brautargengi.
Ég er fæddur árið 1949 á Smyrlabjörgum í Suðursveit og er því Hornfirðingur í húð og hár. Hóf störf hjá KASK árið 1964, fyrst sem verkamaður og síðar sem verkstjóri. Árin 1974-1994 var ég sláturhússtjóri ásamt verkstjórn í ýmsum deildum fiskvinnslunnar. Frá 2001 hef ég starfað eingöngu við sláturhúsið og hef því átt mikil og góð samskipti við bændur í sveitarfélaginu. Af þessum störfum mínum hef ég lært margt og tel mig hafa góða innsýn í atvinnumál á staðnum. Ég er einnig vel kunnugur staðháttum í sýslunni og það hefur nýst mér vel í störfum mínum sem bæjarfulltrúi.
Árið 1996 keyptum við hjónin efnalaug og þvottahús sem við rekum í dag og veitum bæði fyrirtækjum og einstaklingum þjónustu. Við þjónustum meðal annars fyrirtæki í gistiþjónustu. Fyrir nokkrum árum bættum við svo vefnaðarvöru- og fataverslun við fyrirtækið. Það er mikils virði að hafa hátt þjónustustig þó samfélagið sé lítið og með þessum rekstri okkar leggjum við okkar lóð á vogarskálarnar.
Mér gengur vel að starfa með fólki og það hefur nýst mér vel í störfum mínum fyrir sveitarfélagið. Það er nauðsynlegt að hlusta á raddir fólksins og hafa þær til hliðsjónar í ákvarðanatökum um hag sveitarfélagsins og það hef ég haft að leiðarljósi.
Í Sveitarfélaginu Hornafirði er margt gott, en við þurfum að vera vakandi yfir velferð þess og nýta vel tækifærin sem gefast á næstu árum. Ég býð mig fram í 3.? 6. sæti. Ég vil hag sveitarfélagsins sem bestan.
Einar Karlsson, bæjarfulltrúi.




Skrifa athugasemd