Sterkar stoðir
Grein: Albert Eymundsson þátttakandi í prófkjöri sjálfstæðismanna
Öll þróun í atvinnumálum grundvallast á samkeppnishæfni fyrirtækja, stofnana og svæða. Þess vegna verðum við Skaftfellingar að greina styrkleika okkar og byggja framtíðarhugmyndir okkar á þeim og raunhæfum tækifærum. Undirstaða atvinnulífsins í dag, auðlindirnar okkar í þessu héraði, eru sjávarfangið, nýting landsins, stórbrotin náttúra ásamt mannauðnum. Við erum lánsöm að búa við fjölbreyttan og öflugan sjávarútveg með mikilli landvinnslu. Það verður alltaf fylgifiskur greinarinnar að búa við ákveðið óöryggi og breytingar en um leið eru möguleikarnir að sækja á ný mið og auka verðmæti í greininni.
Framleiðendur landbúnaðarvara eru bjartsýnir og áræðnir og ætla sér að notfæra sér nýja kosti í greininni. Miklar fjárfestingar samfara aukinni tæknivæðingu sýnir að bændur eru ákveðnir að takast á við óhjákvæmilega samkeppni sem verður á næstu árum..
Suðausturlandið skartar mörgum helstu náttúruperlum landsins og jökullinn virkar eins og segull á fólk á faraldsfæti. Ferðaþjónustan nýtur góðs af því og heldur áfram að auka hlutdeild sína í atvinnusköpun í héraðinu.
Þessar atvinnugreinar eru undirstaða byggðarinnar og þess vegna mikilvægt að þær standi traustum fótum og hafi burði til að eflast enn frekar. Allt eru þetta jákvæð teikn og vert að undirstrika það sem vel er gert.
Frumkvöðlastarf og nýsköpun
En í nútíma þjóðfélagi þarf meira til. Þekkingarsamfélagið kallar á umhverfi sem býður uppá fjölbreytta möguleika og hvetur um leið til nýsköpunar. Velmenntað ungt fólk þarf margháttuð störf við hæfi. Í þessu sambandi má benda á Frumkvöðlasetrið í Nýheimum og starfsemina sem þar fer fram. Frumkvöðlasetrið krafðist mikillar vinnu og átak í öflunar fjármagns. Utanaðkomandi aðilar sem kynnt hafa sér aðstæður hér eru sammála um að í Austur-Skaftafellssýslu sé sérstaklega frósamur jarðvegur fyrir frumkvöðla og nýsköpun. Það er hugarfarið sem skiptir oft meira máli en aðstæður og umhverfi. Það þarf þolinmæði til að bíða eftir mælanlegum árangri og frumkvöðlastarfsemi er langtímaverkefni. Þetta gerist samt ekki af sjálfu sér og samningur um Frumkvöðlasetrið rennur út í árslok 2007. Mikilvægt er að ný bæjarstjórn fari strax eftir kosningar að undirbúa framhaldið og fá nýjan samning.
Tækifærin eru víða
Í framtíðinni munu tækifæri Skaftfellinga til að eflast byggjast á einstöku umhverfi héraðsins. Með stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs skapast tvímælalaust góðir möguleikar á frekari sókn í ferðaþjónustunni. Þetta hafa hagsmunaaðilar skynjað. Ánægulegar og áhugaverðar hugmyndir eru í vinnslu s.s. Ferða- og matvælaklasinn, NEST-verkefnið, Norðurljósaverkefnið og afþreying af ýmsu tagi t.d. Jöklasýningin, Þórbergssetur og framlag Hornfirska skemmtifélagsins. Þessu tengjast hugmyndir um heimaafurðarsölu bænda og þar er úr miklu úrvali að velja hér í sýslu. Ég er ánægður með að hafa fengið tækifæri til að koma með óbeinum eða afgerandi hætti að framgangi sumra þessar verkefna.
Sífelldar breytingar og ný störf
Alltaf munu einhver störf leggjast af þó ekki væri nema vegna þess að þeirra er ekki lengur þörf. Ratsjárstofnun er dæmi um slíkt. Aftur á móti ber að fagna þeim áföngum sem náðst hafa í að flytja verkefni til Hornafjarðar s.s. starfstöð Fiskistofu með fimm stöðugildum og útibú Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins sem við gerum okkur vonir um að taki að sér það mörg verkefni að störfum fjölgi þar fljótlega. Útibúið mun taka þátt í frekari rannsóknum og tilraunum vegna humarverkefnis á vegum Frumkvöðlasetursins og er ætlað að auka verulega verðmæti humaraflans. Jafnframt tókst að koma háskólasetrinu á fjárlög þetta árið. Vonir standa til að geta eflt starfsemi þess og fjölga þar stöðugildum m.a til að efla menntunarhlutverk þess. Vaxtarsamningurinn er í eðlilegum farvegi en ekki er rétt að skapa of miklar væntingar vegna hans. Allt eru þetta skref í rétta átt sem fylgja þarf eftir og vinna áfram á sömu braut með því að minna sífellt á tækifærin hér. Ég er tilbúinn að beita áhrifum mínum vegna þessara verkefna og vinna að framgangi þeirra á næsta kjörtímabili eins og þessu.
Jákvæð ímynd
Viljum við efla atvinnulífið og um leið að bæta samfélagið þurfum við að vera jákvæð og bjartsýn. Við eigum að vera óþreytandi að senda þau skilaboð út í þjóðfélagið að hér séu tækifæri og aðstaða fyrir duglegt fólk sem hefur áhuga á að takast á við nýja hugsun og ný verkefni.
Á þann hátt bætum við ímynd héraðsins og sköpum okkur traust í þjóðfélaginu. Það er forsenda þess að fólk velji sér búsetu hér. Ég vill áfram taka þátt í slíkri vinnu.
Albert Eymundsson,
þátttakandi í prófkjöri sjálfstæðismanna




Skrifa athugasemd