Hlutverk sveitarstjórna
Grein: Halldóra Bergljót Jónsdóttir þátttakandi í prófkjöri sjálfstæðismanna
Þann 17. og 18. mars s.l. var haldið hér námskeið á vegum Stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins. Námskeiðið var vel sótt og þátttakendur mjög ánægðir. Þar var mér falið að fjalla um sveitastjórnamál. Við undirbúninginn leitaði ég m.a. fanga í nýlegri skýrslu sem félagsmálaráðherra hefur látið gera um sveitarstjórnamál og lögð hefur verið fyrir Alþingi. Hún fjallar um stöðu og hlutverk sveitarstjórnarstigsins á Íslandi og er ætlað að efla þá umræðu, leggja mat á núverandi stöðu og vekja spurningar um framtíð þess. Það er áhugavert fyrir þá sem eru að velta fyrir sér stjórnun sveitarfélaga og verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga, hvað varðar þjónustu við almenning, að skoða þessa skýrslu. Þar kemur fram að sveitarstjórnir eru einn handhafi framkvæmdavaldsins í landinu og fara með hina staðbundnu stjórnsýslu.
Sjálfsákvörðunarréttur sveitarfélaga er viðurkenndur í stjórnarskránni og sveitarstjórnarlögum, en Alþingi ræður miklu um hver viðfangsefni sveitarstjórnarstigsins eru hverju sinni. Því hefur þótt mikilvægt að efla sveitarfélögin með því að fækka þeim og stækka til að færa megi til þeirra aukin verkefni. Samkvæmt lögum hvíla sömu skyldur á sveitarfélögum til að veita þjónustu hvort sem íbúar eru 100 eða 10.000.
Sveitarfélögin njóta aðeins viss sjálfræðis í tekjuöflun og hafa ákveðinn sjálfsákvörðunarrétt um stjórnskipulega uppbyggingu. Þessi stjórnskipulega uppbygging getur verið nokkuð mismunandi eftir sveitarfélögum t.d. hvað varðar framkvæmdastjórn og nefndaskipan. Í Sveitarfélaginu Hornafirði hefur hingað til verið ráðinn framkvæmdastjóri til að fara með daglega stjórnun, en kjörnir fulltrúar í sveitarstjórn móta stefnu og hafa ákvörðunarrétt í málefnum sveitarfélagsins. Ef einhverjir hafa áhuga á að kynna sér þessa skýrslu þá er slóðin: www.althingi.is/ , þingskjal nr. 570 ? 407. mál.
Halldóra Bergljót Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar.




Skrifa athugasemd