Albert og unga fólkið
Í aðdraganda prófkjörs sjálfstæðismanna á Hornafirði þarf að meta kosti tíu efnilegra frambjóðenda. Undirritaðir ungir kjósendur telja það farsælast fyrir sjálfstæðismenn að Albert Eymundsson verði forystumaður framboðsins. Ljóst er að Albert hefur öðlast mikla reynslu og yfirsýn í gegnum störf sín í félagsstörfum, á sveitarstjórnarvettvangi og íþróttamálum, auk þess að starfa sem skólastjóri, kennari og bæjarstjóri gegnum tíðina. Virðing fyrir ólíkum sjónarmiðum og þörfum fólks er ótvíræður kostur í fari Alberts og kemur vel fram í störfum hans og samskiptum við fólk. Með fullri virðingu fyrir öllum þeim fjölmörgu sem hafa unnið að knattspyrnumálum á Hornafirði má samt með sanni segja að Albert sé ?faðir? knattspyrnunnar hér.
Það þróttmikla starf sem unnið er nú í Sindra er sprottið upp úr frumkvöðlastarfi Alberts. Hann lagði alla tíð ríka áherslu á að byggja upp alla flokka stúlkna jafnt sem drengja. Í þessu starfi komu kostir hans vel í ljós þar sem borin var virðing fyrir hverjum og einum og allir fengu að njóta sin. Til marks um framlag hans á þessu sviði er viðurkenning sem FIFA alþjóðaknattspyrnusambandið veitti á 100 ára afmæli sambandsins. Aðeins einum einstaklingi í hverju aðildarlandi var veitt sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi og stefnumótandi uppbyggingarstarf fyrir knattspyrnuna. Af þessu tilefni sagði formaður KSÍ að valið hafi ekki verið erfitt á Íslandi og að Albert væri fyrirmynd sem knattspyrnuáhugafólk hefði lengi liti til. Það voru stoltir lærisveinar Alberts sem urðu vitni að því þegar hann var heiðraður á frægum landsleik Íslands og Ítalíu fyrir framan 20 þúsund áhorfendur á Laugardalsvellinum s.l. sumar.
Við vitum að ungur valdist Albert til forystustarfa og mannaforráða. Það er kannski ástæða þess að hann hefur gegnum tíðina sýnt ungu fólki mikið traust og falið þeim krefjandi og mikilvæg verkefni. Sem bæjarstjóri hefur hann boðað til funda með ungu fólki. Hann hefur einnig lagt mikla áherslu á að ráða ungt fólk til starfa þegar þess er kostur. Þetta styrkir ungt fólk í trúnni á að ákjósanlegt sé að setjast að á Hornafirði þar sem á þeirra sjónarmið er hlustað og þeim treyst fyrir ábyrgðarmiklum störfum. Áhugi Alberts á málefnum ungmenna og virðing hans fyrir því sem unga fólkið er að gera virðist ekkert dvína.
Undirritaðir hafa tekið nokkurn þátt í starfi á vettvangi Sjálfstæðisflokksins. Þar hefur greinilega komið í ljós að Albert nýtur virðingar um allt land. Til hans er ítrekað leitað þegar fjalla á um ýmis málefni og ekki síst sem snerta ungt fólk. Á þessu kjörtímabili sat hann í nefnd forsætisráðherra um stefnumótun í málefnum barna og situr nú í nefnd menntamálaráða um framtíðarstefnu í íþróttamálum. Það kemur ekki á óvart að það sé eftirspurn eftir viðhorfum og reynslu manna eins og Alberts. Það skiptir máli að forystufólk í sveitarstjórn njóti virðingar út á við því fjölmörg mál þarf að leysa í samvinnu við ríkisvaldið og aðra aðila.
Ungt fólk á hauk í horni þar sem Albert fer.
Kjósum Albert til forystu í prófkjöri sjálfstæðismanna.
Að lokum viljum við minna á yngsta frambjóðandann Sindra Ragnarsson og hvetjum fólk til að merkja við hann í 5. sætið. Við gerum betur grein fyrir stuðningi okkar við Sindra annars staðar.
Gísli Örn Reynisson laganemi í HÍ
Páll Heimsson laganemi í HÍ



Skrifa athugasemd