Hvers vegna !
Grein: Björn Ingi Jónsson þátttakandi í prófkjöri sjálfstæðismanna
Ég sækist eftir 2. sæti í prófkjöri sjálfstæðisflokksins þann 8. apríl n.k. Ég er rafeindavirkjameistari að mennt og stunda nú nám við Háskólann í Reykjavík í rafmagnsiðnfræði sem lítur meðal annars að stjórnunarþætti framkvæmda. Ég hef starfað í stjórn Björgunarfélags Hornafjarðar frá árinu 1993 eða síðan ég flutti heim að loknu námi. Þetta var mér mjög ánægjulegur og lærdómsríkur tími og tel ég mig hafa skilað góðu búi. Sambýliskona mín heitir Hrafnhildur Magnúsdóttir og á ég fjögur börn. Þau atriði sem ég tel vera mikilvægust eru atvinnumál, umhverfið okkar og fjárhagsleg afkoma sveitafélagsins.
Sveitafélagið Hornafjörður státar af mikilli náttúrufegurð og er án efa eitt auðugasta sveitarfélag á Íslandi hvað þessa auðlind varðar. Í henni eru falin verðmæt atvinnutækifæri sem eru eitt það mikilvægasta til að einstaklingar og fjölskyldur vilji búa hér. Það er skylda okkar að gera sveitarfélagið eftirsóknarvert með því að markaðsetja það til búsetu. Þar á ég við að draga upp jákvæða mynd af Sveitafélaginu Hornafirði út á við og halda kostum þess hátt á lofti. Jafnframt verðum við að vera meðvituð um það sem betur má fara. Oft vill verða, að í umræðunni veltist það sem neikvætt er og það jákvæða sem við búum við gleymist. Um þetta ættum við að hugsa og vera stolt af því að búa hér.
Til þess að laða ungt fólk heim aftur að skólagöngu lokinni þurfum við að skapa umhverfi fyrir fjölbreyttari atvinnu með eftirsóknarverðum störfum. Vatnajökuls þjóðgarður með höfuðstöðvar á Hornafirði getur orðið upphafið af miklu stærri heild. Rannsóknar- og þekkingarsetursetur sem væri vagga jöklarannsókna á veraldar vísu, mundi stuðla að spennandi atvinnutækifærum fyrir unga fólkið okkar í framtíðinni. Efla mætti framhaldsskólann með sérhæfingu á sviði náttúruvísinda, sem mundi efla vitund unga fólksins með þeim tækifærum sem hér felast auk þess að laða fólk víðar að til náms hér. Við þurfum að nýta flugvöllinn okkar meira með komu erlendra ferðamanna í beinu flugi og gera flug hingað að vænlegum kosti hvað varðar þægindi og öryggi. Sú fjarskiptatækni sem til er í dag gerir mögulegt að stunda vinnu og nám án tillits til búsetu og verðum við að halda vöku okkar og dragast ekki aftur hvað varðar möguleika að nýta þessa þætti. Sérstaklega er mikilvægt að allir geti nálgast þá menntun sem hugur þeirra stendur til.
Eitt af því mikilvægasta sem bæjarfulltrúum er treyst fyrir er að sýsla með fjármuni sveitarfélagsins. Við þurfum að sýna ábyrga fjármálastefnu. Þegar ráðist er í framkvæmdir er nauðsynlegt að kostnaðarhliðar séu lýðum ljósar áður en ákvörðun er tekin um framhald. Sama má segja um skipulagsbreytingar. Nauðsynlegt er að metnaðarfull framtíðarsýn hvað varðar heildarmynd bæjarins, ráði þegar ákvarðanir eru teknar um skipulagsmál.
Tökum saman höndum og skipum Sveitafélaginu Hornafirði meðal öflugustu sveitarfélaga landsins. Ég vil hvetja sem flesta til að hafa áhrif á hverjir stjórna sveitafélaginu og taka þátt í prófkjöri sjálfstæðismanna 8 apríl n.k.
Setjið Björn Inga í 2. sæti !




Skrifa athugasemd