Pistlar og pólitík
Björk Pálsdóttir
Björk Pálsdóttir
Varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins

28.03.2006 Pistlar og pólitík

Vil hafa áhrif á framtíð okkar

Grein: Björk Pálsdóttir þátttakandi í prófkjöri sjálfstæðismanna

Þann 8. apríl næstkomandi munu 10 frambærilegir fulltrúar gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisfélagsins á Höfn. Ég hef ákveðið að taka þátt í slagnum og gefa kost á mér í 3.-5. sæti. Ég er fædd í Reykjavík í október árið 1970. Ég kom hingað austur fyrst sumarið 1984. Síðan líða nokkur ár og ég kem ekki aftur austur fyrr en sumarið 1991. Um vorið 1992 lauk ég stúdentsprófi og kom aftur hingað þar sem ég hugðist taka mér smáhvíld frá námi. Það var svo um haustið sem ég kynntist Geir og hef búið hér síðan. Við höfum rekið byggingafyrirtæki síðan við kynntumst og hafa verkefnin verið bæði stór og smá. Í sex ár rákum við einnig Farfuglaheimilið Nýjabæ.

Nú sé ég um bókhald G.Þorsteinsson ásamt því að hugsa um börnin okkar og heimilið. Ég hef haft ánægju af ýmsu félagsstarfi frá því ég var í grunnskóla. En síðan ég flutti hingað hef ég starfað í leikfélaginu og sungið með kvennakórnum. Ég hef verið varamaður í bæjarstjórn síðasta kjörtímabil og varamaður í bæjarráði síðustu tvö ár. Ég á sæti í Kjördæmisráði Suðurlands, Menningarráði Austurlands, Skólanefnd FAS og Umhverfisnefnd.

Ég tel að við þurfum að leggja mikla áherslu á gott og fjölbreytt atvinnulíf því það skiptir sköpum hvað varðar góð búsetuskilyrði. Hér er góð þjónusta við unga sem aldna. Við höfum fallegasta útsýni á landinu. Með fyrirhugaðri stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs má búast við að ferðaþjónustan eigi eftir að eflast mikið en sú atvinnugrein hefur mikið breyst á undanförnum árum. Það er brýnt að við séum vakandi yfir þeim auknu atvinnumöguleikum sem felast í ferðaþjónustu, að öðrum atvinnugreinum ólöstuðum.

Að vera þátttakandi í sveitarstjórnarmálum er mjög þroskandi og gefandi en stundum erfitt. Ég er tilbúin að takast á við þessa áskorun. Ég er ákveðin, sumir segja að ég sé stjórnsöm, ég vil skoða hlutina í víðu samhengi og setja mig inn í skoðanir annarra. Ég er hlynnt því að ungt fólk hafi áhrif á samfélagið sem það býr í og ég vil taka þátt í uppbyggingu sveitarfélagsins. Því bið ég um þinn stuðning í 3.-5. sæti.

Með kveðju,
Björk Pálsdóttir

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica