Veljum öfluga forystu til framtíðar
Grein: Halldóra Bergljót Jónsdóttir, þátttakandi í prófkjöri sjálfstæðismanna
Þann 8. apríl n.k. verður prófkjör hjá okkur sjálfstæðismönnum eins og flestum er orðið kunnugt. Ég hef átt sæti í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar nú í 12 ár. Þar af verið í forystu fyrir sjálfstæðismenn og oddviti í sveitarstjórn sl. 10 ár. Í tveimur síðustu sveitarstjórnarkosningum hef ég leitt listann. Nú sækist ég eftir stuðningi sjálfstæðismanna til áframhaldandi forystu og býð mig áfram í fyrsta sæti. Á þessum árum hef ég öðlast dýrmæta reynslu og kynnst mörgu fólki um allt land á vettvangi sveitarstjórna og stjórnmála almennt.
Ég vil gjarnan nýta þessa reynslu og þekkingu í þágu samfélagsins næstu fjögur árin. Mér hafa verið falin ýmis störf á vettvangi sveitarstjórna. Ég sit í Launanefnd sveitarfélaga, er varamaður í stjórn Sambands ísl sveitarfélaga og einnig varamaður í stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Nú er að störfum nefnd, skipuð af Umhverfisráðherra, sem vinnur að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs og er ég fulltrúi sveitarfélagsins í henni. Það er mikið hagsmunamál að vel takist til við stofnun hans. Ég sit i ráðgjafanefnd Skaftafellsþjóðgarðs. Einnig hef ég gegnt trúnaðarstörfum á vegum Sjálfstæðisflokksins. Sat í stjórn Kjördæmisráðs Suðurkjördæmis í nokkur ár, var varaformaður þar, og í stjórn Sjálfstæðisfélags A-Skaft.
Á þeim árum sem ég hef setið í sveitarstjórn hefur margt áunnist. Grunnskólinn er einsetinn. Heilbrigðis- öldrunarmál og málefni fatlaðra hafa verið færð til sveitarfélagsins með tímbundnum þjónustusamningum. Stofnun Nýheima og efling þeirrar starfssemi sem þar er hýst hefur verið mikið framfaraspor fyrir byggðarlagið. Mörg verkefni eru framundan, sem ég hef fullan hug að taka þátt í á næstu árum. Ný íþróttamannvirki eru nú á teikniborðinu. Ég hef áður nefnt stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Stuðla þarf að eflingu háskólasetursins og Frumunnar, styrkingu fjarnáms og háskólanáms, en jafn réttur til náms án tillits til búsetu er skýlaus krafa okkar. Atvinnumál hafa ávallt verið mér afar hugleikin.
Það eru kröftugir einstaklingar sem taka þátt í prófkjörinu, sem eiga skilið góðan stuðning. Mikilvægt er að flokkurinn gangi óbundinn til kosninga. Staða bæjarstjóra er samningsatriði milli þeirra flokka sem mynda meirihluta að loknum kosningum. Ég hef ekki hugsað mér að sækjast eftir þeirri stöðu.
Ég vil hvetja sjálfstæðismenn til að taka þátt í prófkjörinu og velja öfluga forystu til framtíðar og veita mér umboð til að leiða framboðslista sjálfstæðismanna áfram í næstu kosningum.
Halldóra Bergljót Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar




Skrifa athugasemd