Pistlar og pólitík
Albert Eymundsson, bæjarstjóri
Albert Eymundsson, bæjarstjóri

26.03.2006 Pistlar og pólitík

Almenn þátttaka er mikilvæg

Grein: Albert Eymundsson þátttakandi í prófkjöri sjálfstæðismanna

Almenn þátttaka er mikilvæg

Prófkjör sjálfstæðismanna vegna sveitarstjórnarkosninga fer fram 8. apríl nk. Undirritaður hefur ákveðið að taka þátt í kjörinu og sækist eftir fyrsta sætinu.
Nokkrar ástæður eru fyrir því að ég gef kost á mér til áframhaldandi trúnaðarstarfa á þessum vettvangi. Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga og metnað fyrir velferð samfélagsins hér og reynt að leggja góðum málum lið. Eftir sex ár í starfi bæjarstjóra finnst mér rökrétt að leggja störf mín í dóm kjósenda og sækja umboð mitt til þeirra.

Góð staða

Kjörtímabilið hefur einkennst af góðri afkomu bæjarsjóðs og fyrirtækja sveitarfélagsins og þess vegna er svigrúm til að huga að metnaðarfullum framkvæmdum eins og sundlaugarbyggingu.

Stofnanir sveitarfélagsins eru almennt vel reknar og veita góða þjónustu. Alltaf má gera betur og finna leiðir til að bæta lífsgæði fólksins og samkeppnishæfni samfélagsins. Arðsemi sveitarfélaga mælist í ánægðum íbúum og því skiptir miklu að fólk finni velvilja sveitarstjórnarmanna til að skapa gott samfélag fyrir alla. Velferðarmálin eru dæmigerð í þessu sambandi. Þau vega þyngst í starfsemi sveitarfélaga og tengjast daglegu lífi allra. Í þeim málflokki skipta viðhorf okkar miklu sem og virðing fyrir fólki með ólíkar þarfir og væntingar. Ég hef t.d. lengi verið talsmaður þess að draga úr útgjöldum barnafjölskyldna m.a. með lækkun leikskólagjalda. Það tel ég bestu barnabæturnar. Fyrir 2?4 árum sat ég í nefnd forsætisráðherra um mótun barnastefnu fyrir ríkisstjórnina og fékk þessi sjónarmið samþykkt þar. Þeir sem unnið hafa með mér í gegnum tíðina þekkja vel þessi viðhorf mín. Ég tek leikskólagjöld sem dæmi því þau eru áberandi og mjög íþyngjandi í útgjöldum og rekstri barnafjölskyldna.

Það væri of langt mál í einni blaðagrein að fara ítarlega í einstaka málaflokka en ég vonast til að geta komið viðhorfum mínum og áherslum betur á framfæri á næstunni.

Sambönd og áhrif

Eftir áralangt starf að félagsmálum og á sveitarstjórnarvettvangi hef ég myndað tengsl við áhrifafólk í þjóðfélaginu. Ég tel mér það til tekna að hafa góð sambönd við forystumenn í stjórnmálum og atvinnulífinu.
Þessi tengsl hafa vegið þungt í að koma á samvinnu á milli sveitarfélagsins og ýmissa aðila um framgang mikilvægra verkefna í starfi mínu.

Fjölbreytt verkefni

Þegar kemur að því að leggja mælikvarða á störf okkar er skynsamlegt og sanngjarnt að líta á heildarmyndina. Við getum ekki vænst þess að komast hjá vandamálum, mistökum og ágreiningi varðandi einstök mál í fjölbreyttu og margslungnu umhverfi. Við verðum að sjá skóginn fyrir trjánum. Í þessum efnum gildir það sama um sveitarstjórn, bæjarstjóra og íbúa.

Þátttaka í prófkjöri

Í prófkjörskosningum er yfirleitt ekki mikill skoðanamunur milli frambjóðenda. Frekar er hægt að tala um áherslumun og mismunandi stíl.

Prófkjör geta verið vandmeðfarin og því er áríðandi að frambjóðendur og stuðningsfólk þeirra leggi sig fram um að prófkjörið verði flokknum til framdráttar.

Með framboði mínu er ég ekki að fara fram gegn einum né neinum. Ég býð fram starfskrafta mína, reynslu og viðhorf á mínum eigin forsendum sem byggjast á framlagi mínu í gegnum tíðina. Með góðri samvisku tel ég mig standa fyrir góða afkomu sveitarsjóðs og fyrirtækja sveitarfélagsins, fjölskylduvæn viðhorf í víðum skilningi og möguleika á að ná árangri í samvinnu við fjölmarga aðila. Jafnframt minni ég á framlag mitt í leik og starfi og farsæl samskipti við íbúa héraðsins.

Það eru tíu verðugir frambjóðendur í prófkjörinu og ég hvet sjálfstæðisfólk til að taka þátt í að velja gott fólk á sigurstranglegan framboðslista. Það skiptir okkur öll máli að vel takist til með val á fólki í trúnaðarstörf á vegum sveitarfélagsins. Í kosningum er vænlegt til árangurs að stilla upp lista með einstaklingum sem höfða út fyrir raðir flokksmanna og geta aflað fylgis sem víðast.

Það er mikil áskorun sem felst í því að taka að sér ábyrgðarstörf í þágu samfélagsins. Ég hef áhuga á að vera í sigurstranglegu liði sem sækir fram með góða málefnastöðu að vopni og fín sóknarfæri. Ég hef alla tíð verið talsmaður þess að treysta flokksmönnum til að velja framboðslistann og er tilbúinn að leggja eigin verk í dóm þeirra.

Albert Eymundsson

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica