Menning
Menning í Nýheimum
Í Nýheimum er fjölbreytt menningarstarfsemi. Þar hafa þeir aðilar sem koma að menningarstarfi aðstöðu. Þeir gegna veigamiklu hlutverki í því samspili sem á sér stað í Nýheimum.
Menningarmiðstöð Hornafjarðar
starfrækir bókasafn og skjalasafn auk þess sem skrifstofur hennar eru þar til húsa. Menningarmiðstöðin kemur beint og óbeint að þeirri frumkvöðla- og rannsóknarvinnu sem fram fer í húsinu auk þess að standa fyrir ýmsum menningarviðburðum.
Menningarráð Austurlands
hefur aðstöðu í Nýheimum og er mikilvægur bakhjarl við þróunarstarf í menningarmálum.
Nemendafélag FAS
er virkur þátttakandi í því menningarstarfi sem fram fer í Nýheimum.
Lögð er áhersla á að styðja við frumkvæði og drifkraft unga fólksins með því að aðstoða það við skipulagningu og fjármögnun einstakra viðburða og verkefna.


