Svalbarði - Við enda ísbreiðunnar
Ný sýning opnar í Listasafni
Á morgun föstudag klukkan 16:00 opnar ný sýning í fremra rými Listasafns Hornafjarðar og ber hún heitið Svalbard At the Ice Edge.
Á sýningunni gefur að líta myndir af dýralífi á Svalbarða, þá sérstaklega ísbirni. Um 2000 ísbirnir hafast við á Svalbarða árið um kring og þar gefst einna besta tækifærið til þess að sjá þessi stórfenglegu dýr í sínu náttúrulega umhverfi.
Á Svalbarða er mjög fjölbreytt dýralíf og má þar nefna hreindýr, ref, rostung og sel, fyrir utan gríðarstóra hópa fjölbreyttra fuglategunda á borð við svartfugl, máf og óðinshana.
Myndirnar voru teknar í tveimur ferðum á Svalbarða, árið 2008 og 2012 og ljósmyndararnir að baki myndunum eru þau Michael og Felicity Bullock, en þau eru mjög dugleg að ferðast og ljósmynda, þá aðallega dýralíf.
Eftir fyrstu ferð sína hingað árið 2006 féllu þau Bullock hjón fyrir Íslandi og ákváðu í kjölfarið að byggja sér hús hér á Hvalnesi. Þau koma mjög reglulega til Íslands og ferðast mikið um til þess að mynda náttúru og dýralíf. Þau halda úti heimasíðunni www.icephotos.com þar sem gefur að líta fjölbreyttar myndir frá Íslandi af dýralífi og náttúru. Þetta er önnur sýning þeirra hjóna hjá Menningarmiðstöð, en árið 2010 var sett um sýning á myndum þeirra af dýralífi í Kenýa.
Sýningin mun standa til 12. mars og er sölusýning. Verðið á mynd er 4500 krónur og aðgangur er ókeypis.



