Menning
Áhugaljósmyndasýning 2012
Áhugaljósmyndasýning 2012
Áhugaljósmyndasýning 2012-4
Mynd 2 af 5
1 2 3 4 5

20.12.2012

Sýning áhugaljósmyndara

Þema landið og fólkið

Sýning áhugaljósmyndara hefur verið sett upp í þriðja sinn, en að þessu sinni er hún utan dyra eins og margir hafa eflaust tekið eftir.

Þemað þetta árið er landið og fólkið og ljósmyndarar hafa allir túlkað þemað eftir sínu höfði. Myndirnar á sýningunni eru yfir 100 talsins og eru mjög fjölbreyttar eins og þær eru margar.

Búið er að prófa sig áfram með staðsetningu sýningarinnar en hún verður á vegg Listasafnsins, við innganginn í Ráðhúsið. Tilvalið er að slá tvær flugur í einu höggi, versla í jólapakkann og skoða sýninguna í leiðinni.

Nýverið festi Menningarmiðstöð kaup á öflugum skjávarpa sem mun koma sér vel við hinar ýmsu sýningar í framtíðinni, en myndunum er varpað upp með honum og mun hún standa til janúarloka og fer af stað eftir myrkur.

Menningarmiðstöðin vil þakka eftirfarandi styrktaraðilaðilum kærlega fyrir stuðninginn en þeir eru Nettó, Sparisjóðurinn, Landsbankinn og Skinney Þinganes

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica