Tónleikar með Jónasi Sig og Ómari Guðjóns í Pakkhúsinu
Tónleikar í Pakkhúsinu sunnudaginn 25. nóvember
Jónas Sigurðsson og Ómar Guðjónsson lögðu saman land undir fót núna í nóvember og ætlunarverkið var að halda 14 tónleika á 14 dögum.
Þeir lögðu af stað á húsbíl, með tvö trommusett, gítar, bassa og hljómborð í bílnum, en veðuraðstæður á Íslandi eru ekkert sértaklega góðar svona þegar líða tekur á haustið, svo þeir skiptu yfir á vel útbúinn jeppa til að komast örugglega á þessa 14 áfangastaði á 14 dögum.
Þeir félagar ætla að enda ferðalagið á tónleikum í Pakkhúsinu sunnudagskvöldið 25. nóvember klukkan 21:00.
Miðaverð er 2000 krónur og miðasala er við innganginn.



