Nú fer að styttast í sýningu áhugaljósmyndara
Sýning áhugaljósmyndara hefst þann 7. desember
Áhugaljósmyndasýning hefst í þriðja sinn þann 7. desember næstkomandi og mun standa út janúar.
Sýningin verður með breyttu sniði í ár en myndunum verður varpað upp með skjávarpa utandyra, nánar tiltekið á Ráðhúsið. Þemað er Landið og fólkið, en þemað þarf samt ekki endilega að tengjast Íslandi, svo um að gera að nota ímyndunaraflið.
Dómnefnd fer yfir innsendar myndir og engin takmörk eru fyrir fjölda mynda frá þátttakendum, en þær þurfa að vera í skjáupplausn.
Hægt er að skila inn myndefni á minnislykli eða senda póst á gudlaugp@hornafjordur.is Nánari upplýsingar um sýninguna er hægt að nálgast hjá Guðlaugu Ósk hjá Menningarmiðstöð í síma 4708057 eða senda tölvupóst.
Mjög mikilvægt er að þátttakendur sendi einnig inn mynd af sjálfum sér, ásamt upplýsingum á borð við aldur, kyn og ljósmyndaáhuga (af hverju ljósmyndun, hversu lengi viðkomandi hefur tekið myndir og hvaða myndefni er áhugaverðast og af hverju).
Einnig er æskilegt að fram komi upplýsingar um þátttökur í ljósmyndasýningum og annað sem fólk vill koma á framfæri. Þessar upplýsingar munu svo fylgja myndunum á sýningunni.
Athugið að síðasti dagur til að skila inn myndum er 5. desember
www.facebook.com/Menningarmiðstöð Hornafjarðar



