Úrslit í smásagna og ljóðakeppni grunnskólans og Menningarmiðstöðvar
Dagur íslenskrar tungu
Á föstudaginn síðasta fóru fram útslit í Smásagna ljóðkeppni Grunnskóla Hornafjarðar og Menningarmiðstöðvar.
Keppnin er haldin þann 16. nóvember ár hvert í tilefni að Degi Íslenskrar tungu sem fer fram á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar. þátttakendur skrifa smásögur og ljóð og haldin er bekkjakeppni þar sem að tvö bestu verkin fara áfram.
Þemað í ár var „Haust“ og gefin voru verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í keppninni.
Berglind Óttarsdóttir lenti í fyrsta sæti með ljóðið sitt Sumarlok. Í öðru sæti lentu þær Agnes Jóhannsdóttir og Lena Sveinsdóttir með smásögu um haustið og haustið í lífi fólks. Í þriðja sæti lenti Hildur Margrét Björnsdóttir með ljóðið Haustið. Hér á síðu Grunnskólans má sjá vinningsljóðið og fleiri myndir frá keppninni.



