Norræn Bókasafnavika
Norræna Bókasafnavikan hefst 12. nóvember
Norræna bókasafnavikan er stærsta sameiginlega menningardagskráin sem fram fer á Norðurlöndum.
Í viku er boðið upp á upplestra, sýningar, umræður og aðra menningaratburði á þúsundum bókasafna og annarra samkomustaða.
Vikan er haldin með það fyrir augum að lyfta undir norræna frásagnahefð og bókmenntir. Hún fer fram vikuna 12. til 18. nóvember og þemað þetta árið er „Margbreytileiki á Norðurlöndum“.
Dagskrá verður á Bókasafninu frá mánudegi til og með föstudegi og það verður nóg um að vera. Allir velkomnir.



