Menning
Ljósmyndari að störfum
Ljósmyndari að störfum

12.11.2012

Áhugaljósmyndasýning - landið og fólkið

Þriðja áhugaljósmyndasýning Menningarmiðstöðvar

Áhugaljósmyndasýning verður haldin í þriðja sinn í desember en að þessu sinni fer hún fram utan dyra.

Myndunum verður varpað upp með skjávarpa á Ráðhúsið. Sýningin opnar þann 7. desember og mun hún standa út janúar. Þemað í ár er Landið og Fólkið og áhugasamir ljósmyndarar eru hvattir til þess að senda inn myndir þessu tengdu og taka þátt í sýningunni.

Dómnefnd fer yfir innsendar myndir og engin takmörk eru fyrir fjölda mynda frá þátttakendum, en þær þurfa að vera í skjáupplausn. Hægt er að skila inn myndefni á minnislykli eða senda póst á gudlaugp@hornafjordur.is

Nánari upplýsingar um sýninguna er hægt að nálgast hjá Guðlaugu Ósk hjá Menningarmiðstöð í síma 4708057 eða senda tölvupóst.

Mjög mikilvægt er að þátttakendur sendi einnig inn mynd af sjálfum sér, ásamt upplýsingum á borð við aldur, kyn og ljósmyndaáhuga (af hverju ljósmyndun, hversu lengi viðkomandi hefur tekið myndir og hvaða myndefni er áhugaverðast og af hverju).

Einnig er æskilegt að fram komi upplýsingar um þátttökur í ljósmyndasýningum og annað sem fólk vill koma á framfæri. Þessar upplýsingar munu svo fylgja myndunum á sýningunni.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica