Menning
Valdimar
Valdimar
Hljómsveitin Valdimar

29.10.2012

Hljómsveitin Valdimar með tónleika í Pakkhúsinu

Valdimar með tónleika í tilefni að annarri breiðskífu sinni

Hljómsveitina Valdimar þekkja allir landsmenn orðið vel enda búnir að vera að gera það gott eftir að fyrsta plata þeirra Undraland kom út árið 2010.

Hljómsveitin er búin að vera starfandi frá árinu 2009 og hefur verið dugleg að koma fram síðustu tvö árin. þann 9. nóvember næstkomandi verður hljómsveitin með tónleika í Pakkhúsinu í tilefni að útgáfu nýrrar breiðskífu. Platan hefur hlotið nafnið Um Stund og inniheldur 12 ný lög.

Tónleikarnir hefjast klukkan 22:00 og miðaverð er 2000 krónur.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica