Dansnámskeið hjá Jóni Pétri frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru
Dans dans dans
Jón Pétur frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru sækir okkur Hornfirðinga heim fjórða veturinn í röð og býður okkur upp í dans.
Jón Pétur er okkur flestum vel þekktur og hefur kennt okkur að tjútta eins og enginn sé morgundagurinn og mun halda áfram þar sem síðast var frá horfið núna í vikunni.
Dansinn hefst á þriðjudagskvöld 30. október klukkan 20:00 og mun standa í 3 daga, til og með fimmtudagskvöldi. Fyrsta og þriðja kvöldið verða í Sindrabæ en annað kvöldið í Nýheimum.
Námskeiðsgjaldið er 1000 krónur á mann fyrir kvöldið og eins og alltaf er engin kvöð að mæta á öll kvöldin.
Betra er að hafa með sér dansfélaga þar sem að dansinn sem er kenndur er paradans. Óþarfi er að skrá sig á námskeiðið en nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Guðlaugu hjá Menningarmiðstöðinni gudlaugp@hornafjordur.is



