Menning
Leyndardómar hafsins
Leyndardómar hafsins
Leyndardómar hafsins - Listasafn
Mynd 4 af 4
1 2 3 4

29.10.2012

Partur af Náttúrugripasýningu Gömlubúðar til sýnis

Fugalíf og sjávarlíf til sýnis á Bókasafni og Listasafni

Í dag opnar ný sýning á Bókasafni og í fremra rými Listasafns Hornafjarðar úr Náttúrugripasafni Gömlubúðar.

Á Bókasafninu gefur að líta fjölbreytt fuglasafn en það inniheldur fugla og egg þeirra fugla sem verpa í Austur – Skaftafellssýslu og ber sýningin heitið Fuglalíf. Sýningin mun standa á Bókasafninu fram á næsta ár og er öllum opin.

Í fremra rými Listasafnsins gefur svo að líta dýralíf sem tengist hafinu á einn eða annað hátt, hvort sem það er í sjónum eða við sjóinn og heitir Leyndardómar hafsins. Sýningin mun standa fram að áramótum og er öllum opin.

Í tilefni af opnun sýninganna var bókin Íslenskir fuglar teiknaðir af Benedikt Gröndal keypt á safnið en bókin er samansafn af teikningum Benedikts af fuglum sem eiga aðsetur á Íslandi tímabundið eða eru hér að staðaldri. Í fyrsta sinn er til bók sem sýnir teikningar af öllum hérlendum fuglum.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica