Verk Svavars Guðnasonar til sýnis í Hollandi
Yfirgripsmikil sýning á verkum Svavars Guðnasonar er nú til sýnis í Cobra-safninu í Hollandi, en Svavar var einn af forsprökkum Cobra-hópsins og frumkvöðull abstrakt málverksins á Íslandi.
Þórir Ibsen sendiherra Íslands gagnvart Hollandi opnaði sýninguna formlega hinn 19. október síðastliðinn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.
Fram kemur að þetta sé fyrsta yfirlitssýning á verkum Svavars Guðnasonar í Hollandi en á sýningunni er á fimmta tug verka sem unnin voru á árunum 1928-1980. Verkin eru í eigu einkaaðila og opinberra safna, þar á meðal Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar.
Sýningin er samstarfsverkefni Listasafn Íslands, Cobra Museum of Modern Art, Carl-Henning Pedersen & Else Alfelts Museum og Skovhuset. Þá segir að Íslandsvinurinn Lars Olesen sé forgöngumaður sýningarinnar. Bent er á að Olesen hafi verið virkur að kynna íslenska myndlist í Evrópu á undanförnum árum.
Í tengslum við sýninguna hefur verið gefin út vegleg sýningarskrá sem inniheldur texta eftir Hanne Lundgren Nielsen, Kristínu G. Guðnadóttur, Per Hovdenakk, Ejler Bille, Christian Dotremont og Svavar Guðnason.
Sýningin sem er farandsýning, verður sett upp í tveimur söfnum í Danmörku á næsta ári, í Carl-Henning Pedersen & Else Alfelts-safninu í Herning í janúar á næsta ári og í Skovhuset um miðjan apríl 2013.



