Safnahelgi á Suðurlandi verður haldin helgina 2. - 4. nóvember
Safnahelgi á Suðurlandi
Helgina 2. - 4. nóvember verður Safnahelgi á Suðurlandi haldin hátíðleg í 5. sinn. Safnahelgin er stærsti sameiginlegi Menningarviðburðurinn á suðurlandinu og nær hann frá Ölfusi allt til Hornafjarðar. Á síðasta ári tóku yfir sjötíu aðilar þátt með því að bjóða upp á margvíslega viðburði.
Söfn, setur, veitingastaðir, kaffihús, listamenn, handverksfólk, sýningarsvæði og allir skapandi einstaklingar sem hafa áhuga geta tekið þátt í Safnahelgi.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt eru hvattir til að hefja undirbúning og ákveða hvað þeir vilja bjóða upp á. Upplýsingar um viðburðinn má svo senda á gudlaugp@hornafjordur.is
Nánari upplýsingar um helgina má svo finna á www.sunnanmenning.is



