Menning
Gæðingur
Gæðingur
Gæðingur
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

26.09.2012

Kynning félagasamtaka í Nýheimum á laugardaginn

Ertu í leit að áhugamáli?

Laugardaginn 29. september munu flest félagasamtök í sýslunni kynna starfsemi sína fyrir gestum og gangangi í Nýheimum frá klukkan 13:00 til 16:00.

Veturinn er fram undan og félagsstarf í sýslunni að vakna til lífsins aftur eftir sumarfrí. Mikið er um fjölbreytt félagasamtök á svæðinu og nóg er í boði fyrir þá sem eru í leit að nýju áhugamáli, hvort sem það er hreyfing, tómstundir, handverk eða líknartstarf af einhverju tagi.

Á degi sem þessum er kjörið að kynna sér nýjan félagskap og kynna sér hvað er í boði í samfélaginu. Kynningin er opin öllum og hefst klukkan 13:00 og stendur til klukkan 16:00.

Boðið verður upp á tónlistatatriði og að sjálfsögðu verður kaffi á könnunni og konfekt með.

Gríptu tækifærið

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica