Uppskeruhátíð sumarlesturs og barnastarfs
Sumarlesturs og Barnastarfs Menningarmiðstöðvar
Á fimmtudaginn næsta verður uppskeruhátíð Sumarlesturs Bókasafnsins og Barnastarfs Menningarmiðstöðvar í Nýheimum klukkan 15:00.
Skoðaðar verða myndir frá ferðum Barnastarfsins í sumar og gætt sér á köku og djús í tilefni dagsins.
Einnig verður dregið úr sumarlestrarpottinum og fær sá heppni smá glaðning frá Bókasafninu. Við vonumst til þess að sjá sem flesta lestrarhesta og ævintýrafara á uppskeruhátíðinni
Starfsfólk Menningarmiðstöðvar


