Menning
Heimsókn á  svínabúið á Miðskeri
Heimsókn á svínabúið á Miðskeri
Mynd 6 af 6
1 2 3 4 5 6

03.08.2012

Barnastarf Menningarmiðstöðvar heimsækir svínabúið á Miðskeri.

Síðastliðinn þriðjudag var haldið að Miðskeri í Nesjum, tilgangur ferðarinnar var að skoða svínabúið.

9 börn tóku þátt í ferðinni. Pálína bóndi tók vel á móti hópnum og fræddi börnin um svínin og lífshætti þeirra, fóður og slíkt.

Var svo farið í svínahúsið, þar var nóg um að vera.  Í gyltuhúsinu  var það gyltan Ýla sem fékk mikla athygli enda í fremstu stíunni. Svo  var farið í grísahúsið og Þar var fullt af grísum á öllum aldri en engir nýfæddir grísir. Fengu börnin að setja hey í stíurnar hjá grísunum.  Þegar komið var frá svínunum var farið í hænsnakofann og voru þar fullt af litlum hænuungum sem voru allavega á litinn eins og hænurnar sem eru landnámshænur , alveg gulfallegar.  Að lokum var farið garðinn á Miðskeri og nestið borðað og þar eru líka epla og perutré sem voru farin að bera ávexti.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica