Barnastarf Menningarmiðstöðvar heimsækir svínabúið á Miðskeri.
Síðastliðinn þriðjudag var haldið að Miðskeri í Nesjum, tilgangur ferðarinnar var að skoða svínabúið.
9 börn tóku þátt í ferðinni. Pálína bóndi tók vel á móti hópnum og fræddi börnin um svínin og lífshætti þeirra, fóður og slíkt.
Var svo farið í svínahúsið, þar var nóg um að vera. Í gyltuhúsinu var það gyltan Ýla sem fékk mikla athygli enda í fremstu stíunni. Svo var farið í grísahúsið og Þar var fullt af grísum á öllum aldri en engir nýfæddir grísir. Fengu börnin að setja hey í stíurnar hjá grísunum. Þegar komið var frá svínunum var farið í hænsnakofann og voru þar fullt af litlum hænuungum sem voru allavega á litinn eins og hænurnar sem eru landnámshænur , alveg gulfallegar. Að lokum var farið garðinn á Miðskeri og nestið borðað og þar eru líka epla og perutré sem voru farin að bera ávexti.



