Hellaskoðun í Viðborðshraunum
Barnastarf Menningarmiðstöðvar
Á þriðjudaginn var farið með 15 krakka í hellaskoðun í Viðborðshraunum á Mýrum í góðu veðri. Í Viðborðshraunum eru þó nokkrir hellar og nokkrir þeirra hafa verið notaðir sem fjárhús í gegnum tíðina og einn þeirra sem mannabústaður en byggt var yfir hellinn og síðast var búið í frá árunum 1934 - 1941. Enn má sjá steypuför við hann og einnig bera aðrir hellar á svæðinu augljós merki um einhverskonar búsýslu. Mikið er af skemmtilegum svæðum til að leika sér í, í Viðborðshraunum og farið var í allskonar leiki í ferðinni, borðað nesti og notið veðurblíðunnar. Mikið var rætt um að gista því að enginn var tilbúin til þess að fara heim. Við sjáumst svo á þriðjudaginn næsta klukkan 13:00 við Menningarmiðstöðina en þá verður farið í steinaskoðun í Laxárdal.


