Menning
Fuglaskoðun 2012
Fuglaskoðun 2012
Fuglaskoðun 2012-3
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

28.06.2012

Vel heppnuð fuglaskoðunarferð í Barnastarfi Menningarmiðstöðvar

Fuglaskoðunarferð í Óslandið

Á þriðjudaginn var farið í fuglaskoðunarferð í Óslandið með Bjössa Arnar fuglaáhugamanni með meiru. Krakkarnir voru vel búnir og margir tilbúnir með hjólahjálmana sína á hausnum til að forðast gogg í hausinn frá Kríunni. Í ferðinni voru nokkrir Kríu og Tjaldsungar merktir svo hægt sé að fylgjast með ferðum þeirra og athuga hvort þeir snúi aftur á sama staðinn.

Fuglalífið í Óslandinu er fjölbreytt og töldu krakkarnir um átta mismunandi fuglategundir í ferðinni en þær eru Tjaldur, Kría, Æðakolla, Stelkur, Stokkönd, Sandlóa, Óðinshani og Lóuþræll, einnig lá selur makindalega á sandinum, en hann notaði tækifærið og naut sólarinnar eins og við hin.

Nestið var borðað við fjöruborðið og leikið sér aðeins í sandinum, endað var á því að týna Blóðberg sem átti að nota í tegerð.

Á næsta þriðjudag verður farið í hellaskoðun í Viðborðshraunum. Enn og aftur minnum við á að það er mjög mikilvægt að skrá sig í ferðirnar á Bókasafninu og nestið er ómissandi líka. Við sjáumst á næsta þriðjudag og munið að klæða ykkur eftir veðrinu.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica