Opið í Skreiðarskemmunni á Humarhátíð og tekið á móti munum
Tekið á móti sögum, myndum eða munum í Skreiðarskemmunni á Humarhátíð
Á Humarhátíð verður opið í Skreiðarskemmunni frá klukkan 13:00 -21:00 og þar gefur að líta verkefni sem kallað er Skreiðarskemman – sjóminjasafn í vexti. Eins og Hornfirðingar vita hefur breyting orðið á sýningaraðstöðu Byggðasafnsins með flutningi Gömlubúðar og unnið er að framtíðarfyrirkomulagi safnamála en um leið höldum við áfram uppbyggingu á safnkosti safnsins.
Einn liður í uppbyggingu safnkostsins er að sinna betur minjum um sjósókn og fiskvinnslu og þurfum við hjálp heimamanna við að hafa allar klær úti og safna öllu því sem við kemur lífinu við höfnina og á sjónum.
Starfsmenn Byggðasafns hafa komið upp í Skreiðarskemmunni vísi að sjóminjasafni og vilja með hjálp Hornfirðinga gæða skemmuna lífi og auka við safnkost Byggðasafnsins.
Laugardaginn 23. júní verða starfsmenn safnsins í Skreiðarskemmunni milli klukkan 13:00 og 17:00 og viljum við hvetja alla þá sem vilja leggja okkur lið, með sögum, myndum eða munum að heimsækja okkur og taka þátt í þessu verkefni okkar.
Þeir sem ekki geta heimsótt okkur í Skreiðarskemmunni geta leitað til starfsmanna Menningarmiðstöðvarinnar í Nýheimum alla virka daga eða í síma eða tölvupósti, 470 8054 eða bjorn@hornafjordur.is



