Menning
Ræmurnar
Ræmurnar
Ræmurnar

18.06.2012

Bútasaumsfélagið Ræmurnar

Sýning á verkum Ræmanna í Miðbæ og á Bókasafninu

Búið er að opna sýningu í Nýheimum og Miðbæ, á verkum eftir félagsmenn Bútasaumsfélagsins Ræmanna.

Sýningin er opin á opnunartíma Bókasafns og um helgina eins og hér segir:

Laugardagur 23. júní frá kl. 13:00 til 17:00. Sunnudagur 24. júní frá kl.13:00 til 16:00. Bútasaumsfélagið Ræmurnar var stofnað árið 2002 af nokkrum bútasaumskonum á Hornafirði. Við stofnun félagsins voru ræmurnar um 30 talsins og hefur sú tala nánast verið óbreytt síðan því ef einhver dettur út þá kemur alltaf nýr meðlimur inn.

Í félaginu eru konur á öllum aldri sú elsta er komin yfir áttrætt en sú yngsta rúmlega þrítug. Þær byrjuðu á því að hittast fyrsta sunnudag í mánuði og sauma saman, en í dag hittast þær annan hvern sunnudag að jafnaði.

Ræmurnar hafa saumað frá fyrsta sunnudag í maí og tekið sumarfrí fram á fyrsta sunnudegi í september. Þær leigja aðstöðu hjá Verkalýðsfélaginu, sem býr yfir góðum sal með góðum ljósum og þar er saumað frá kl. 9 á morgnanna, fram eftir degi.

Það hefur verið hefð fyrir því að um miðjan október fara þær saman í helgarferð í Suðursveit að Hótel Smyrlabjörgum og sauma þar saman alla helgina. Þá fer lítill tími til spillis því oft er saumað til klukkan tvö á nóttunni og byrjað strax aftur eftir morgunmat.

Ræmurnar eru einnig með langa helgi í Verkalýðshúsinu um miðjan febrúar, þá er alltaf topp mæting og mikið gaman. Hingað til hafa þær verið með tvær bútasaumssýningar í Pakkhúsinu sem hafa verið vel sóttar.

Það eru allir velkomnir að líta við hjá þeim í Verkalýðshúsinu 1. og 3. hvern sunnudag, annaðhvort til þess að sauma eða bara til þess að skoða hvað þær eru að gera og kynna sér félagið.

ATH. nýjir félagar eru alltaf velkomnir.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica