Fyrstu barnastarfsferð sumarsins lokið
Plöntuskoðunarferð í Barnastarfi Menningarmiðstöðvar
Síðast liðinn þriðjudag var fyrsta ferð sumarsins í Barnastarfi Menningarmiðstöðvar. Farið var í plöntuskoðunarferð í tilefni af degi hinna villtu blóma sem haldinn er þann 17. júní ár hvert.
Rannveig Einarsdóttir var leiðsögumaður í ferðinni, en ferðin var öllum opin. Ellefu manns slógust í för, átta börn og 3 fullorðnir og höfðu allir gaman af. Gengið var frá Menningarmiðstöðinni að Drápsklettum og ýmsar jurtir og blóm skoðuð á leiðinni. Rannveig sagði meðal annars frá því hvaða jurtir væri hægt að nota til lækninga og var blað af Hófsóley notað í ferðinni til þess að vefja utan um sár á putta. Allir skemmtu sér vel, tíndu blóm og urðu margs fróðari um jurtir og blóm.
Næsta þriðjudag verður svo farin sjóferð um Hornafjörðinn með Hornafjörður Bay Cruise. Munið að skrá ykkur í ferðirnar á Bókasafninu og athugið að ferðin er klukkan 14:00.


