Menning
Ásta Eiríksdóttir og Svavar Guðnason
Ásta Eiríksdóttir og Svavar Guðnason
Mynd úr búi Ástu og Svavars.

14.06.2012

Svavar / náttúran - sagan

Sögusýning um Svavar Guðnason listmálara

Sögusýning um Svavar Guðnason listmálara sem ber heitið „Svavar / náttúran – sagan“ opnar í Listasafni Hornafjarðar 16. júní kl. 16.00. Sýningin er unnin af Huldu Rós Sigurðardóttur list- og menningarfræðingi en hún hefur rannsakað líf og list Svavars síðastliðin ár.

Á sýningunni gefur að líta æviágrip og fræðslu um líf og list Svavars úr ýmsum áttum. Hluti af sýningunni fjallar um uppruna Svavars sem tengist sögu Hafnar. Með verkefninu er markmiðið meðal annars að kynna Svavar fyrir gestum á litríkan, lifandi og skemmtilegan hátt.

Sýningin er unnin út frá meistaraverkefni Huldu Rósar í hagnýtri menningarmiðlun. Verkefnið fjallar meðal annars um það hvernig má nýta menningararf til miðlunar og uppbyggingar á Hornafirði. Fjallað er um uppruna Svavars og ár hans á Hornafirði en einnig hvernig hann tengdist svæðinu eftir að hann flutti burt. Hann var listamaður „úr ríki Vatnajökuls“ ekki síst vegna þess að einstök náttúrutilfinning hans birtist endurtekið í málverkinu, í viðtölum og umræðu um listamanninn.

Það er rétt eins og að í huganum hafi Svavar tekið með sér náttúrufegurðina á æskuslóðunum hvert sem hann fór. Það að Svavar hafi verið fæddur og uppalinn á Hornafirði, auk þess sem hann tengdist landslaginu tilfinningaböndum, skapar fjölmörg tækifæri í menningartengdri ferðaþjónustu.

Verkefnið er styrkt af Vinum Vatnajökuls og verður sýningin opin út sumarið.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica