Barnastarf Menningarmiðstöðvar sumarið 2012
Barnastarfið hefst með plöntuskoðun um Hornafjörð
Barnastarf Menningarmiðstöðvar sumarið 2012 Barnastarfið hefst með plöntuskoðunarferð um Hornafjörð Barnastarf Menningarmiðstöðvarinnar hefst þann 12. Júní næstkomandi á plöntuskoðunarferð um Hornafjörð. Ferðin er samstarfsverkefni Menningarmiðstöðvar og Vatnajökulsþjóðgarðs í tilefni af Degi hinna viltu blóma sem er þann 17. Júní. Allir ungir sem aldnir eru velkomnir í þessa fyrstu barnastarfsferð sumarsins.
Það verður á nógu að taka í sumar að vanda en boðið verður upp á 10 ólíkar ferðir sem ættu að höfða til allra. Við verðum á víð og dreif um sveitarfélagið og skoðum náttúruna, dýralífið og landslagið með leiðsögn frá góðu fólki. Börn frá sjö ára aldri eru velkomin með í ferðirnar en þeir sem eru yngri en 7 ára verða að vera í fylgd með fullorðnum.
Mjög mikilvægt er að skrá sig á Bókasafninu fyrir allar ferðir í síma 4708057. Taka þarf nesti með í allar ferðirnar svo maður verði ekki svangur og klæða sig eftir veðri.
Verðið á þessum ferðum hefur haldist óbreytt frá upphafi þeirra og kostar 500 krónur á manninn að koma með í ferðir á vegum Barnastarfs Menningarmiðstöðvar. Ferðirnar eru alltaf á þriðjudögum klukkan 13:00 og eru auglýstar á skjávarpinu og facebook síðu Menningarmiðstöðvar með nokkurra daga fyrirvara. Eftir hverja ferð eru svo birtar myndir og smá samantekt á síðu sveitarfélagsins.
Umsjónarmenn Barnastarfsins eru Guðlaug Ósk og Bryndís Hólmarsdóttir Hér að neðan er hægt að sjá yfirlit yfir ferðir sumarsins.
Barnastarf sumarið 2012
12. júní Plöntuskoðunarferð um Hornafjörð
19. júní Sjóferð um Hornafjörðinn
26. júní Fuglaskoðun í Óslandi
3. júlí Lúruveiði í firðinum
10. júlí Steinaskoðun í Laxárdal
17. júlí Hellaskoðun í Viðborðshraunum
24. júlí Svínabúið á Miðskeri skoðað
31. júlí Heimsókn í Dýragarðinn í Hólmi
7. ágúst Fjöruferð að Horni
14. ágúst Óvissuferð


