Menning
Ásta Eiríksdóttir og Svavar Guðnason
Ásta Eiríksdóttir og Svavar Guðnason
Mynd úr búi Ástu og Svavars.

22.05.2012

Sumarsýning á verkum Svavars Guðasonar listmálara opnar í Listasafni

Ný sýning opnar í Listasafni

Menningarmiðstöð Hornafjarðar opnar nýja sýningu í Listasafni Hornafjarðar föstudaginn 25. maí.

Sýningin er sumarsýning á verkum Svavars Guðasonar listmálara og mun standa til 28. september. Á sýningunni gefur að líta hluta þeirra málverka sem Ásta Eiríksdóttir, kona Svavars færði Sveitarfélaginu Hornafirði að gjöf.

Sýningin ber heitið Til Ástu minnar en Ásta stóð alltaf dyggilega við bakið á manni sínum. Sýningin er opin alla virka daga frá klukkan 9:00 til 12:00 og 13:00 til 15:30.

Aðgangur að safninu er ókeypis.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica