Reykjavík Shorts & Docs fer á flakk
Úrval stutt og heimildamynda sýndar í Sindabæ þann 12. maí
Reykjavík Shorts & Docs kvikmyndahátíðin fagnar 10 ára afmæli á þessu ári og hátíðin hefur aldrei verið jafn stór með 75 stutt- og heimildamyndir. Hátíðin fer á flakk 12. maí og verða sýningar í Sindrabæ með úrval stutt- og heimildamynda af hátíðinni.
Alls verða 25 stutt- og heimildamyndir sýndar á hátíðinni. Í ár eru fjórir sýningarflokkar; Íslenskar myndir, Pólskar myndir, Konur í kvikmyndum og Nýliðar en í þeim síðastnefnda eru heimildamyndir sem eru fyrsta eða önnur mynd sinna leikstjóra.
Frítt er á sýningu íslenskra stuttmynda kl. 14 og þá er sömuleiðs frítt á sýningu pólskra stuttmynda kl. 16. Í hvorri sýningunni eru sýndar alls átta stuttmyndir sem allar eiga það sameiginleg að hafa vakið athygli hér heima og erlendis á kvikmyndahátíðum.
Hornfirðingurinn Haukur Margeir Hrafnsson á myndina Invisible Border á hátíðinni en hann er við nám í kvikmydagerð í Lodz í Póllandi. Myndin hans verður sýnd kl. 18 auk fjögurra annarra mynda.
Meðal helstu mynda sem sýndar verða í Sindrabæ má nefna; Heimildamyndin Donor Unknown e. Jerry Rothwell sem fjallar um JoEllen sem var getin með aðstoð gjafasæðis og fer að leita af líffræðilega föður sínum.
Heimildamyndin The Price of Sex e. Mimi Chakarova sem fjallar um mansal & vændi í Austur-Evrópu.
Íslenska stuttmyndin Come to Harm e. Börk Sigþórsson en myndin hefur verið sýnd á kvikmyndahátíðum um víða veröld og unnið fjölmörg verðlaun.
Íslenska stuttmyndin Krass e. Tómas H. Jóhannesson. Myndin fjallar um tvo bræður sem reka bílaþvottastöð. Annar er söngelskur en hinn er að læra að skrifa nafnið sitt og það gæti reynst hættulegra en það hljómar.
Aðgangseyrir er kr. 500 á sýningar kl. 18 / 20 / 22, en sýningar kl. 14 og 16 eru eins og áður segir frír.
Íslenskar myndir eru með enskum texta og allar erlendu myndirnar eru með enskum texta. Allar upplýsingar um myndirnar má nálgast á heimasíðu okkar hér og á Facebook
Sýningar Reykjavík Shorts & Docs hefði ekki verið mögulegar ef ekki væri fyrir góðan stuðning Sveitafélagsins Hornafjarðar, Hótel Hafnar, Humarhafnarinnar, Kaffi Hornsins, Ice Lagoon siglinga á Jökulsárlóni, Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu og Menningarmiðstöðvarinnar og færum við þeim bestu þakkir fyrir allan stuðninginn og aðstoðina.
Við vonumst að sjálfsögðu til að sjá sem flesta í Sindrabæ laugardaginn 12. maí!
Heather Millard stjórnandi & Brynja Dögg Friðriksdóttir, kynningarfulltrúi, Reykjavík Shorts & Docs.
Hér er svo bæklingur hátíðarinnar þar sem hægt er að finna upplýsingar um allar myndirnar sem eru sýndar á hátíðinni.



